Fara beint í efnið

Prentað þann 27. des. 2024

Breytingareglugerð

1404/2021

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 560/2009 um íslensk vegabréf, með síðari breytingum.

1. gr.

Í stað orðanna "láta senda" í d-lið 2. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar kemur orðið: sækja.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 13. gr. reglugerðarinnar:

  1. Orðin "umsækjanda, eða" falla brott.
  2. Tveir nýir málsliðir bætast við, svohljóðandi: Umsækjandi getur jafnframt fengið vegabréf afhent á framleiðslustað vegabréfs. Sé umsækjandi búsettur erlendis er heimilt að senda honum vegabréfið með öruggum hætti, s.s. með rekjanlegri póstsendingu eða ábyrgðarsendingu.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 11. gr. laga um vegabréf nr. 136/1998, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2022.

Dómsmálaráðuneytinu, 15. nóvember 2021.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.

Haukur Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.