Prentað þann 7. apríl 2025
Stofnreglugerð Reglugerð án breytinga, sjá breytingasögu.
1385/2022
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 555/2020 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar eru gerðar á 1. gr. reglugerðarinnar:
- Nýr stafliður bætist við 1. mgr., svohljóðandi: Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 448/2013 um að koma á fót málsmeðferð til að ákvarða tilvísunaraðildarríki fyrir rekstraraðila sérhæfðra sjóða utan ESB samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/61/ESB. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 57, frá 13. október 2016, bls. 545-547.
- Á eftir orðunum "skv. a-c-lið" í 2. mgr. reglugerðarinnar kemur: og e-lið.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 64. gr. laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, nr. 45/2020, öðlast gildi 1. desember 2024.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 28. nóvember 2022.
F. h. r.
Guðrún Þorleifsdóttir.
Elísabet Júlíusdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.