Prentað þann 23. des. 2024
1373/2021
Reglugerð um (10.) breytingu á reglugerð nr. 481/2017 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1235/2008 um ítarlegar reglur um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 834/2007 að því er varðar fyrirkomulag á innflutningi lífrænna afurða frá þriðju löndum.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir, 37. og 38. tölul., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/772 frá 10. maí 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/977 að því er varðar tímabundnar ráðstafanir í tengslum við eftirlit með framleiðslu lífrænt ræktaðra vara, einkum gildistímann. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 163/2021, frá 11. júní 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 49, frá 22. júlí 2021, bls. 116.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1325 frá 10. ágúst 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/977 að því er varðar gildistíma tímabundinna ráðstafana í tengslum við eftirlit með framleiðslu lífrænt ræktaðra vara. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 236/2021, frá 24. september 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 71, frá 11. nóvember 2021, bls. 152.
2. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 4. og 5. gr. laga nr. 162/1994, um lífræna landbúnaðarframleiðslu, með síðari breytingum.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 7. gr. laga nr. 162/1994, um lífræna landbúnaðarframleiðslu.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. gr. laga nr. 162/1994, um lífræna landbúnaðarframleiðslu.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 29. nóvember 2021.
Svandís Svavarsdóttir
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Iðunn Guðjónsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.