Fara beint í efnið

Prentað þann 18. apríl 2024

Breytingareglugerð

1344/2021

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 380/2013 um lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja.

1. gr.

Við 3. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður svohljóðandi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/699 frá 21. desember 2020 um breytingu og leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 748/2012 að því er varðar leiðbeiningar varðandi áframhaldandi lofthæfi, um framleiðslu á hlutum sem nota á meðan á viðhaldi stendur og um að taka tillit til þátta í eldri loftförum meðan á vottun stendur, eins og hún er tekin upp í EES-samninginn, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 257/2021 frá 11. nóvember 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 71 frá 11. nóvember 2021, bls. 254.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 7. mgr. 28. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 26. nóvember 2021.

F. h. r.

Valgerður B. Eggertsdóttir.

Eggert Ólafsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.