Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

1339/2021

Reglugerð um (19.) breytingu á reglugerð nr. 577/2013 um snyrtivörur.

1. gr.

Við 7. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/850 frá 26. maí 2021 um breytingu og leiðréttingu á II. viðauka og breytingu á III., IV. og VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur, sem vísað er til í tölulið 1a, XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 294/2021 frá 29. október 2021. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 74 frá 18. nóvember 2021, bls. 197-204.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1099 frá 5. júlí 2021 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur, sem vísað er til í tölulið 1a, XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 295/2021 frá 29. október 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 74 frá 18. nóvember 2021, bls. 205-207.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/850 frá 26. maí 2021 um breytingu og leiðréttingu á II. viðauka og breytingu á III., IV. og VI. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1099 frá 5. júlí 2021 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 7. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 15. nóvember 2021.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.