Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 23. des. 2021

1328/2021

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar, nr. 1266/2021.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:

  1. 1. tölul. 4. mgr. orðast svo: Allir gestir fæddir 2015 og fyrr framvísi neikvæðri niðurstöðu úr COVID-prófi (PCR eða antigen) sem má ekki vera eldra en 48 klst. Undanþegnir þessu eru þeir sem framvísa jákvæðri niðurstöðu úr PCR-prófi sem er eldra en 14 daga gamalt en yngra en 180 daga.
  2. Fjöldatakmarkanir 1. og 2. mgr. gilda ekki um almenningssamgöngur, hópbifreiðar, innanlandsflug, farþegaferjur og störf viðbragðsaðila, svo sem lögreglu, slökkviliðs, hjálparliðs almannavarna og heilbrigðisstarfsfólks. Enn fremur gildir ákvæðið ekki um störf ríkisstjórnar, ríkisráðs, þjóðaröryggisráðs, Alþingis og þegar dómstólar fara með dómsvald sitt.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, tekur þegar gildi.

Heilbrigðisráðuneytinu, 26. nóvember 2021.

Svandís Svavarsdóttir.

Ásta Valdimarsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.