Prentað þann 22. des. 2024
1304/2021
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð um velferð alifugla, nr. 135/2015.
1. gr.
3. mgr. bráðabirgðaákvæðis reglugerðarinnar verður svohljóðandi:
Notkun á hefðbundnum búrum skv. 24. gr. skal hætt eftir 31. desember 2022.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 55/2013 um velferð dýra og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 4. nóvember 2021.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Kolbeinn Árnason.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.