Prentað þann 18. des. 2024
1303/2023
Reglugerð um breytingu á reglugerð um ökuskírteini, nr. 830/2011.
1. gr.
Við 2. mgr. 29. gr. reglugerðarinnar bætist: og 8. mgr. 52. gr.
2. gr.
Við 52. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, 8. mgr., sem orðist svo:
Með reglugerð þessari er innleidd reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/1280 frá 18. júlí 2022 um sértækar og tímabundnar ráðstafanir, í ljósi innrásar Rússlands í Úkraínu, varðandi skjöl fyrir ökumenn sem gefin eru út í Úkraínu í samræmi við löggjöf landsins, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 113/2023 frá 28. apríl 2023 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 40 frá 25. maí 2023, bls. 346-353.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 62. gr umferðarlaga nr. 77/2019, öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 16. nóvember 2023.
F. h. r.
Árni Freyr Stefánsson.
Marta Mirjam Kristinsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.