Fara beint í efnið

Prentað þann 24. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 23. des. 2020

1303/2020

Reglugerð um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á ostum frá Noregi.

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum samkvæmt sérstökum samningi milli Íslands og Noregs um viðskipti með landbúnaðarvörur, samkvæmt 65. gr. B búvörulaga nr. 99/1993 og 12. gr. tollalaga nr. 88/2005. Reglugerð þessi gildir um innflutning á smurosti frá Noregi og með upprunavottorð þaðan.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um vörumagn, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur
Úr tollskrárnr. kg % kr./kg
0406.3000 Smurostur 01.01. - 31.12.21 13.000 0 0

Tímabil það sem tilgreint er miðast við tollafgreiðslu en ekki við komu flutningsfars til landsins og skal tollafgreiðslu lokið innan tímabilsins.

3. gr.

Tollkvótum er úthlutað samkvæmt auglýsingu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, sem birt er á heimasíðu þess, þar sem tilgreindir eru skilmálar vegna úthlutunarinnar. Með umsókn um tollkvóta skal senda tilboð sem verður tekið tillit til ef það berast umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur. Í þeim tilvikum skulu tilboðin ráða úthlutun viðkomandi vöruliðar. Tollkvótanum verður fyrst úthlutað til hæstbjóðanda, svo til þess er næsthæst bauð og þannig koll af kolli uns tiltækum kvóta hefur verið úthlutað og greiða bjóðendur tilboðsfjárhæðina að fullu. Tilboðsgjafi sá er hæst býður skal leysa til sín úthlutaðan tollkvóta með greiðslu andvirðis hans innan sjö daga frá útgáfu reiknings vegna úthlutunar.

Úthlutun er ekki framseljanleg.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 1250/2019, um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins, með síðari breytingum.

4. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. búvörulaga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. B búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2021.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 21. desember 2020.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ása Þórhildur Þórðardóttir.

Arnór Snæbjörnsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.