Prentað þann 26. des. 2024
Breytingareglugerð
1302/2023
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 237/2014 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara.
1. gr.
Við 6. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/217 frá 1. febrúar 2023 um leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar ósamræmi í kröfum sem innleiddar voru með framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/1387 og reglugerðum (ESB) 2021/1296 og (ESB) 2021/2237, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 187 frá 5. júlí 2023. Reglugerðin er birt í EES‑viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 68 frá 21. september 2023, bls. 79-81.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 93. gr. og 115. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022 og öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 16. nóvember 2023.
F. h. r.
Árni Freyr Stefánsson.
Valgerður B. Eggertsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.