Fara beint í efnið

Prentað þann 26. apríl 2024

Breytingareglugerð

1287/2022

Reglugerð um (19.) breytingu á reglugerð nr. 888/2015 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH).

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2030 frá 19. nóvember 2021 um breytingu á XVII. viðauka (viðvíkjandi N,N-dímetýlformamíði) við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)), sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 207/2022 frá 8. júlí 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 53 frá 11. ágúst 2022, bls. 41-44.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2204 frá 13. desember 2021 um breytingu á XVII. viðauka (viðvíkjandi efnum sem eru krabbameinsvaldandi, stökkbreytandi eða hafa eiturhrif á æxlun (CMR-efni)) við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)), sem vísað er til í tölulið 12zc, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 170/2022 frá 10. júní 2022. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 47 frá 14. júlí 2022, bls. 69-72.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2030 frá 19. nóvember 2021 um breytingu á XVII. viðauka (viðvíkjandi N,N-dímetýlformamíði) við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)).
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2204 frá 13. desember 2021 um breytingu á XVII. viðauka (viðvíkjandi efnum sem eru krabbameinsvaldandi, stökkbreytandi eða hafa eiturhrif á æxlun (CMR-efni)) við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)).

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 1. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 23. nóvember 2022.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Stefán Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.