Fara beint í efnið

Prentað þann 29. apríl 2024

Breytingareglugerð

1261/2023

Reglugerð um (6.) breytingu á reglugerð um áhættusöm þriðju lönd vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 105/2020.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, töluliður 10, svohljóðandi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2070 frá 18. ágúst 2023 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2016/1675 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/849, að því er varðar að bæta Kamerún og Víetnam í töfluna í I. lið í viðaukanum, sem vísað er til í IX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 252/2018 frá 5. desember 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 83, 16. nóvember 2023, bls. 182.

2. gr.

Listi yfir áhættusöm þriðju lönd, sem birtur er sem fylgiskjal við reglugerð nr. 105/2020, tekur breytingum til samræmis við þær breytingar sem greinir í 1. gr. reglugerðar þessarar. Listinn er birtur sem fylgiskjal við reglugerð þessa þannig breyttur.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 56. gr. laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 140/2018 og öðlast þegar gildi.

Dómsmálaráðuneytinu, 22. nóvember 2023.

Guðrún Hafsteinsdóttir.

Haukur Guðmundsson.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.