Prentað þann 16. mars 2025
1260/2012
Reglugerð um innleiðingu reglugerðar ráðsins (EB) nr. 169/2009 frá 26. febrúar 2009 um að beita samkeppnisreglum gagnvart flutningum á járnbrautum, vegum og skipgengum vatnaleiðum.
1. gr.
Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 130/2010 frá 10. desember 2010 gildir eftirtalin EB-gerð hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XIV. viðauka við EES-samninginn um samkeppni, bókun I um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð ráðsins nr. 169/2009 frá 26. febrúar 2009 um beitingu samkeppnisreglna á sviði flutninga á járnbrautum, vegum og skipgengum vatnaleiðum.
2. gr.
Reglugerð ráðsins (EB) nr. 169/2009 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB nr. 40/2011, 14. júlí 2011, bls. 93.
Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 130/2010 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB nr. 17/2011, 31. mars 2011, bls. 6.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 32. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005, öðlast þegar gildi.
Með reglugerð þessari fellur úr gildi reglugerð nr. 815/2006 um innleiðingu reglugerðar ráðsins (EBE) nr. 1017/68 frá 19. júlí 1968 um að beita samkeppnisreglum gagnvart flutningum á járnbrautum, vegum og skipgengum vatnaleiðum.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. desember 2012.
F. h. r.
Valgerður Rún Benediktsdóttir.
Sigurbjörg Stella Guðmundsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.