Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Prentað þann 1. apríl 2026

Breytingareglugerð

1218/2024

Reglugerð um breytingu á reglugerð um happdrætti Sambands íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga nr. 923/2001.

1. gr.

1. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Verð ársmiða er 27.600 kr. en endurnýjunarverð í hverjum flokki 2.300 kr.

2. gr.

8. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Hlutanúmer eru seld á skrifstofu SÍBS í Reykjavík, á netinu, í síma og hjá umboðsmönnum happdrættisins.

Endurnýjunargreiðsla hlutanúmers skal hafa borist happdrætti SÍBS með sannanlegum hætti fyrir lok síðasta endurnýjunardags.

3. gr.

1. mgr. 10. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Útdráttur vinninga fer fram opinberlega í Reykjavík daginn eftir síðasta endurnýjunardag á þeim stað og á þeim tíma sem happdrættisráð samþykkir.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt lögum um happdrætti fyrir Samband íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga nr. 18/1959, öðlast gildi 1. janúar 2025.

Dómsmálaráðuneytinu, 14. október 2024.

Guðrún Hafsteinsdóttir.

Haukur Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.