Prentað þann 24. nóv. 2024
1198/2018
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1255/2016, um ráðstöfunarfé og dagpeninga samkvæmt lögum um almannatryggingar.
1. gr.
Í stað "3.491 kr." í 3. gr. kemur: 3.617 kr.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr.:
- Í stað "862.668 kr." í 1. málsl. 1. mgr. kemur: 893.724 kr.
- Í stað "1.327.182 kr." í 2. málsl. 1. mgr. kemur: 1.374.960 kr.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 10. mgr. 48. gr., sbr. 70. gr., laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2019. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1193/2017, um breytingu á reglugerð nr. 1255/2016, um ráðstöfunarfé og dagpeninga samkvæmt lögum um almannatryggingar.
Velferðarráðuneytinu, 17. desember 2018.
Ásmundur Einar Daðason
félags- og jafnréttismálaráðherra.
Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.