Prentað þann 16. mars 2025
1197/2018
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 675/1994, um leigumiðlun.
1. gr.
Í stað orðsins "húsaleigubætur" í 1. gr. reglugerðarinnar kemur: húsnæðisbætur.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. reglugerðarinnar:
- 2. tölul. orðast svo: Vátryggingaratburður: atvik sem samkvæmt vátryggingarsamningi veldur því að til greiðslu bóta getur komið.
- 2. málsl. 3. tölul. fellur brott.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr. reglugerðarinnar:
- 1. mgr. fellur brott.
- Í stað orðsins "500.000" í 2. mgr. kemur: 1.300.000.
- Í stað orðsins "tjónstilviks" í 2. mgr. kemur: vátryggingaratburðar.
- Í stað orðsins "1.500.000" í 2. mgr. kemur: 4.000.000.
- Í stað ártalsins "1994" í 3. mgr. kemur: 2018.
- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Að öðru leyti gilda lög um vátryggingarsamninga nr. 30/2004.
4. gr.
13. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
5. gr.
Við 1. málsl. 14. gr. reglugerðarinnar bætist: sem lokið hafa meistaraprófi og löggiltir fasteignasalar.
6. gr.
Reglugerð þessi sem er sett með heimild í 82. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994, sbr. 74. gr. laganna, öðlast gildi 1. janúar 2019.
Velferðarráðuneytinu, 6. desember 2018.
Ásmundur Einar Daðason
félags- og jafnréttismálaráðherra.
Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.