Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 20. apríl 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 30. des. 2008 – 21. júlí 2009 Sjá núgildandi

1190/2008

Reglugerð um fjárhæðir frítekjumarka (tekjumarka) almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar.

1. gr.

Frítekjumörk (tekjumörk) bóta samkvæmt lögum nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2009:

frítekjumark kr. efra tekjumark kr.
Vegna fjármagnstekna (allar bætur) 98.640
Tekjutrygging vegna eigin atvinnutekna
skv. 2. málsl. b-liðar 2. mgr. 16. gr. 1.315.200
Tekjutrygging vegna eigin atvinnutekna
skv. ákvæði til bráðabirgða 1.315.200
Ellilífeyrir skv. 2. mgr. 17. gr. 2.575.220 3.981.332
Örorkulífeyrir skv. 5. mgr. 18. gr. 2.575.220 3.981.332
Örorkustyrkur skv. 1. mgr. 19. gr. 2.575.220 3.961.268
Örorkustyrkur skv. 2. mgr. 19. gr. 2.575.220 3.981.332
Aldurstengd örorkuuppbót (100%)
skv. 1. mgr. 21. gr. 3.981.332
Tekjutrygging vegna lífeyrissjóðstekna
skv. 3. málsl. 3. mgr. 22. gr. 328.800
Vasapeningar skv. 2. og 3. málsl. 8. mgr. 48. gr. 773.446
Vasapeningar vegna vinnu á stofnun
skv. 5. og 6. málsl. 8. mgr. 48. gr. 812.774

2. gr.

Frítekjumörk (tekjumörk) bóta samkvæmt lögum nr. 99/2007 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2009:

frítekjumark kr. efra tekjumark kr.
Endurhæfingarlífeyrir skv. 1. mgr. 7. gr. 2.575.220 3.981.332

3. gr.

Tekjumörk bóta samkvæmt reglugerð nr. 595/1997 um heimilisuppbót og frekari uppbætur samkvæmt lögum um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir fyrir hvern mánuð ársins 2009:

efra tekjumark kr.
Frekari uppbætur skv. 1. mgr. 9. gr. 198.650

4. gr.

Frítekjumark: Með frítekjumarki er í reglugerð þessari átt við fjárhæð tekna á ári sem ekki skerðir bætur.

Efra tekjumark: Með efra tekjumarki er í reglugerð þessari átt við fjárhæð tekna á ári sem veldur því að bætur falla niður að fullu.

5. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, og 14. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2009. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1225/2007 um hækkun frítekjumarka (tekjumarka) almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar, með síðari breytingum.

Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 23. desember 2008.

Jóhanna Sigurðardóttir.

Ágúst Þór Sigurðsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.