Prentað þann 10. apríl 2025
1189/2011
Reglugerð um framlengdan frest til þess að setja tiltekin eyrnamörk.
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 26/2001 frá 1. maí 2010 öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 509/1999 um að framlengja hámarksfrest á því að setja eyrnamörk á Ameríkuvísunda.
2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 509/1999 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 59 frá 27. október 2011, bls. 3.
3. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995 um matvæli.
4. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt XI. kafla laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli og 17. gr. laga nr. 103/2002 um búfjárhald o.fl. og öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 21. nóvember 2011.
Jón Bjarnason.
Baldur P. Erlingsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.