Fara beint í efnið

Prentað þann 27. des. 2024

Breytingareglugerð

1152/2023

Reglugerð um (7.) breytingu á reglugerð um útrýmingu á riðuveiki og bætur vegna niðurskurðar, nr. 651/2001.

1. gr.

Við 2. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar bætist:

Sé arfgerð um næmi fyrir riðu þekkt í hjörð eða að undangenginni arfgerðagreiningu er yfirdýralækni heimilt að leggja til að lóga hluta hjarðar.

2. gr.

Á eftir 2. ml. 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi:

Þá getur Matvælastofnun einnig veitt leyfi til flutnings lamba með mögulega verndandi arfgerðir gegn riðu milli hjarða innan sýktra svæða, að því tilskildu að hinar mögulega verndandi arfgerðir hafi verið samþykktar af stofnuninni og að lögð sé fram tímasett ræktunaráætlun um innleiðingu verndandi arfgerða fyrir viðkomandi hjörð.

3. gr.

Á eftir "alls" í 1. málsl. 1. mgr. og 2. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar kemur: eða hluta.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim nr. 25/1993. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Jafnframt er felld úr gildi reglugerð nr. 826/2023 um (6.) breytingu á reglugerð um útrýmingu á riðuveiki og bætur vegna niðurskurðar, 651/2001.

Matvælaráðuneytinu, 1. nóvember 2023.

Svandís Svavarsdóttir.

Kolbeinn Árnason.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.