Prentað þann 14. apríl 2025
1151/2022
Reglugerð um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum, trjám o.fl.
1. gr.
Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar matvælaráðherra tollkvótum samkvæmt viðaukum III B og IV B við tollalög nr. 88/2005, með síðari breytingum.
2. gr.
Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:
Vara | Tímabil | Vörumagn | Verðtollur | Magntollur | |
Tollskrárnr.: | stk. | % | kr./stk. | ||
0602.2000 | Tré, runnar og búskar, einnig ágrætt sem ber æta ávexti eða hnetur. | 01.01.-31.12.23 | ótilgr. | 30 | 0 |
0602.3010 | Alparósir og lyngrósir (Rhododendron), einnig ágræddar | 01.01.-31.12.23 | ótilgr. | 30 | 0 |
0602.3020 | Glóðarrósir (Azalea) | 01.01.-31.12.23 | ótilgr. | 30 | 0 |
Rósir, einnig ágræddar: | |||||
0602.4010 | Í smásöluumbúðum | 01.01.-31.12.23 | ótilgr. | 30 | 0 |
0602.4090 | Aðrar | 01.01.-31.12.23 | ótilgr. | 30 | 0 |
0602.9030 | Matjurta- og jarðarberjaplöntur | 01.01.-31.12.23 | ótilgr. | 30 | 0 |
Annað: Útiplöntur: - Tré, runnar og búskar: | |||||
0602.9041 | Skógartré sem ungar sáðplöntur af barr- eða lauftrjátegundum sem einkum eru nýttar til skógræktar, oftast án rótarhnauss (berróta eða bakkaplöntur) | 01.01.-31.12.23 | ótilgr. | 30 | 0 |
Annað: | |||||
0602.9045 | Græðlingar með rót og ungplöntur | 01.01.-31.12.23 | ótilgr. | 30 | 0 |
0602.9049 | Annars | 01.01.-31.12.23 | ótilgr. | 30 | 0 |
Aðrar útiplöntur: | |||||
0602.9051 | Fjölærar jurtkenndar plöntur | 01.01.-31.12.23 | ótilgr. | 30 | 0 |
Græðlingar með rót og ungplöntur, þó ekki kaktusar: | |||||
0602.9070 | Græðlingar með rót og ungplöntur, þó ekki kaktusar, til framhaldsræktunar | 01.01.-31.12.23 | ótilgr. | 30 | 0 |
Blómstrandi plöntur með knúppum eða blómum, þó ekki kaktusar: | |||||
0602.9081-.9083 og 0602.9088 | Blómstrandi plöntur með knúppum eða blómum, þó ekki kaktusar | 01.01.-30.06.23 | 2.200 | 30 | 0 |
0602.9081-.9083 og 0602.9088 | Blómstrandi plöntur með knúppum eða blómum, þó ekki kaktusar | 01.07.-31.12.23 | 1.650 | 30 | 0 |
0602.9089 | Aðrar | 01.01.-31.12.23 | ótilgr. | 30 | 0 |
Aðrar: | |||||
0602.9093 | Pottaplöntur til og með 1 metri á hæð, þó ekki kaktusar og þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna | 01.01.-30.06.23 | 3.000 | 30 | 0 |
0602.9093 | Pottaplöntur til og með 1 metri á hæð, þó ekki þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna | 01.07.-31.12.23 | 2.160 | 30 | 0 |
0602.9099 | Annars | 01.01.-31.12.23 | ótilgr. | 30 | 0 |
Lifandi: | |||||
0603.1100 | Rósir | 01.01.-30.06.23 | 2.000 | 30 | 0 |
0603.1300 | Orkídeur, þ.m.t. brönugrös (Orchidaceae) | 01.01.-31.12.23 | ótilgr. | 30 | 0 |
0603.1400 | Tryggðablóm (Chrysanthemums) | 01.01.-30.06.23 | 9.000 | 30 | 0 |
0603.1400 | Tryggðablóm (Chrysanthemums) | 01.07.-31.12.23 | 6.500 | 30 | 0 |
0603.1901 | Ættkvíslirnar Protea, Banksia, Leucadendron og Brunia | 01.01.-31.12.23 | ótilgr. | 30 | 0 |
0603.1902 | Afskornar greinar með berjum og ávöxtum, óætum af ættkvíslunum: Ligustrum, Callicarpa, Gossypium, Hypericum, Ilex og Symphoricarpos | 01.01.-31.12.23 | ótilgr. | 30 | 0 |
0603.1903 | Forsythia (páskagreinar) | 01.01.-31.12.23 | ótilgr. | 30 | 0 |
0603.1906-1908, 0603.1911-1918 og 0603.1999 | Afskorin blóm og blómknappar sem notað er í vendi eða til skrauts, lifandi, þurrkað, litað, bleikt, gegndreypt eða unnið á annan hátt, þ.m.t. geislafíflar, sólliljur, fétoppar, silkivendir, ilmskúfar, ljónsmunnar, gullhrís, silfurstjörnur, brúðarslör, flamingoblóm og túlípanar | 01.01.-30.06.23 | 166.250 | 30 | 0 |
0603.1906-1908, 0603.1911-1918 og 0603.1999 | Afskorin blóm og blómknappar sem notað er í vendi eða til skrauts, lifandi, þurrkað, litað, bleikt, gegndreypt eða unnið á annan hátt, þ.m.t. geislafíflar, sólliljur, fétoppar, silkivendir, ilmskúfar, ljónsmunnar, gullhrís, silfurstjörnur, brúðarslör, flamingoblóm og túlípanar | 01.07.-31.12.23 | 118.750 | 30 | 0 |
Annað: | |||||
0604.2030 | Jólatré, án rótar | 01.01.-31.12.23 | ótilgr. | 30 | 0 |
0604.2040 | Jólatrésgreinar | 01.01.-31.12.23 | ótilgr. | 30 | 0 |
0604.2090 | Annað | 01.01.-31.12.23 | ótilgr. | 30 | 0 |
0604.9090 | Annars | 01.01.-31.12.23 | ótilgr. | 30 | 0 |
Við innflutning á vörum sem falla undir þau tollskrárnúmer þar sem vörumagn er ekki tilgreint skal gilda sá verð- og/eða magntollur sem tilgreindur er í 1. mgr. yfir tilgreint tímabil. Fyrir þau tollskrárnúmer þar sem vörumagn er tilgreint gildir tiltekinn verð- og/eða magntollur samkvæmt útgefnum tollkvótum.
3. gr.
Tollkvótum er úthlutað samkvæmt ákvæðum búvörulaga nr. 99/1993. Tollkvótar eru auglýstir á vefsíðu matvælaráðuneytisins þar sem tilgreindir eru skilmálar og fram koma frekari upplýsingar um framkvæmd úthlutunarinnar.
4. gr.
Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, í þeim tollskrárnúmerum þar sem magn er tilgreint, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Til þess að tilboð teljist gilt skal því fylgja ábyrgðaryfirlýsing banka, sparisjóðs eða vátryggingafélags þar sem fram kemur að viðkomandi ábyrgðarveitandi tryggi að tilboðsgjafi geti staðið við tilboð sitt. Einnig er heimilt í stað ábyrgðaryfirlýsingar að greiða andvirði tollkvóta á reikning Fjársýslunnar og láta kvittun fylgja tilboðsgögnum. Umsóknar- og tilboðsferli vegna úthlutunar tollkvótans fer fram með rafrænum hætti á vefkerfinu tollkvoti.is.
Tilboðsgjafi sá er fær úthlutað tollkvóta skal leysa hann til sín með greiðslu andvirðis hans innan sjö daga frá dagsetningu tilkynningar um niðurstöðu útboðs. Úthlutun er ekki framseljanleg.
5. gr.
Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 189/1990, um innflutning og útflutning á plöntum og plöntuafurðum, með síðari breytingum.
6. gr.
Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 65. og 82. gr. búvörulaga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.
7. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2023. Við gildistöku hennar fellur úr gildi reglugerð nr. 1294/2021 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum, trjám o.fl.
Matvælaráðuneytinu, 12. október 2022.
Svandís Svavarsdóttir.
Ása Þórhildur Þórðardóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.