Prentað þann 23. des. 2024
1144/2020
Reglugerð um (6.) breytingu á reglugerð nr. 477/2017 um lífræna framleiðslu og merkingu lífrænna vara.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 25. tölul., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/977 frá 7. júlí 2020 um undanþágu frá reglugerðum (EB) nr. 889/2008 og (EB) nr. 1235/2008 að því er varðar eftirlit með framleiðslu lífrænt ræktaðra vara vegna COVID-19 heimsfaraldursins. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 124/2020, frá 25. september 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 69, frá 29. október 2020, bls. 306.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. gr. laga nr. 162/1994, um lífræna landbúnaðarframleiðslu, með síðari breytingum.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 19. nóvember 2020.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Iðunn Guðjónsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.