Prentað þann 16. jan. 2025
1142/2014
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 541/2001, um endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna sölu hópferðabifreiða úr landi, með síðari breytingum.
1. gr.
Í stað orðanna "13/1999 um skipulag á fólksflutningum með hópferðabifreiðum, 20,32%" í 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar kemur: 73/2001 um fólksflutninga, vöruflutninga og efnisflutninga á landi, 19,35%.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 6. mgr. 42. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, og öðlast gildi 1. janúar 2015.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 17. desember 2014.
F. h. r.
Maríanna Jónasdóttir.
Guðrún Þorleifsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.