Fara beint í efnið

Prentað þann 24. nóv. 2024

Breytingareglugerð

1130/2024

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1209/2021 um .eu höfuðlénið.

1. gr.

Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1862 frá 4. október 2022 um að taka saman skrár yfir lénsheiti, sem tekin hafa verið frá og lokað fyrir, undir höfuðléninu .eu í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/517, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 25, dagsett 21. mars 2024, á bls. 403, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 34/2024 frá 2. febrúar 2024.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 17. gr. laga um íslensk landshöfuðlén nr. 54/2021, og öðlast þegar gildi.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu, 15. ágúst 2024.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.

Ásdís Halla Bragadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.