Prentað þann 5. maí 2025
1130/2019
Reglugerð um fjárhæðir bóta slysatrygginga almannatrygginga fyrir árið 2020.
1. gr.
Fjárhæðir bóta samkvæmt II. kafla laga nr. 45/2015 um slysatryggingar almannatrygginga skulu vera sem hér segir fyrir árið 2020:
- Dagpeningar, skv. 3. mgr. 11. gr., 2.287 kr. á dag.
- Dagpeningar vegna barns á framfæri, skv. 3. mgr. 11. gr., 513 kr. á dag.
- Örorkulífeyrir, (100%) skv. 12. gr., 48.108 kr. á mánuði, 577.288 kr. á ári.
- Dánarbætur, skv. a-lið, 1. mgr. 13. gr., 53.097 kr. á mánuði, 637.166 kr. á ári.
- Barnalífeyrir, skv. b-lið 1. mgr. 13. gr., 35.565 kr. á mánuði, 426.774 kr. á ári.
- Dánarbætur, skv. c-lið 1. mgr. 13. gr., 662.726-1.988.900 kr. eingreiðsla.
- Dánarbætur, skv. 2. mgr. 13. gr., 928.216 kr. eingreiðsla.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 23. gr. og 2. mgr. 25. gr. laga nr. 45/2015, um slysatryggingar almannatrygginga, sbr. 13. mgr. 32. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2020.
Heilbrigðisráðuneytinu, 10. desember 2019.
Svandís Svavarsdóttir.
Elsa B. Friðfinnsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.