Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 22. des. 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 29. des. 2006 – 1. jan. 2015 Sjá núgildandi

1125/2006

Reglugerð um framkvæmd laga um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá.

1. gr.

Sýslumaðurinn á Sauðárkróki skal frá og með 1. janúar 2007 annast framkvæmd laga um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 7. gr., sbr. 1. mgr. 1. gr. laga um sjóði og stofnanir sem starfa skv. staðfestri skipulagsskrá nr. 19 5. maí 1988, með síðari breytingu, sbr. 1. gr. laga nr. 143 15. desember 2006, öðlast gildi 1. janúar 2007.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 28. desember 2006.

Björn Bjarnason.

Þorsteinn Geirsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.