Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 25. des. 2024

Stofnreglugerð Reglugerð án breytinga, sjá breytingasögu.

1120/2012

Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur þroskaþjálfa og skilyrði til að hljóta starfsleyfi.

I. KAFLI Almenn ákvæði.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um þroskaþjálfa sem hafa starfsleyfi landlæknis skv. 2. gr.

II. KAFLI Starfsleyfi.

2. gr. Starfsheiti.

Rétt til að kalla sig þroskaþjálfa og starfa sem slíkur hér á landi hefur sá einn sem fengið hefur til þess leyfi landlæknis.

3. gr. Skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis.

Leyfi skv. 2. gr. má veita þeim sem lokið hafa 180 ECTS BA-námi auk 60 ECTS diplómaprófs á meistarastigi (stigi 2.1) í þroskaþjálfafræði við menntavísindasvið Háskóla Íslands.

Einnig má veita starfsleyfi á grundvelli menntunar frá ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og Sviss. Um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi þroskaþjálfa sem uppfyllir skilyrði tilskipunar 2005/36/EB, um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi, með síðari breytingum, fer samkvæmt reglugerð um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsmanna frá öðrum EES-ríkjum, nr. 461/2011.

Þá er heimilt að veita starfsleyfi þeim sem lokið hafa sambærilegu prófi frá menntastofnun í ríki utan EES eða Sviss sem viðurkennd er sem slík af heilbrigðisyfirvöldum hér á landi og heilbrigðisyfirvöldum þess ríkis þar sem námið var stundað.

Umsækjandi um starfsleyfi sem þroskaþjálfi, skv. 2. gr., frá ríki utan EES og Sviss sem Ísland hefur ekki samið við um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi skal meðal annars leggja fram gögn um ríkisfang, innihald náms og námslengd, ásamt prófskírteini, starfsleyfi ef starfsgreinin er löggilt í því landi sem umsækjandi kemur frá, fyrirhuguð störf hér á landi svo og önnur gögn og vottorð sem landlæknir telur nauðsynleg vegna útgáfu starfsleyfis.

Áður en umsókn um starfsleyfi er tekin til efnislegrar meðferðar þarf eftir atvikum að liggja fyrir staðfest afrit umsóknar um atvinnu- og dvalarleyfi ásamt undirrituðum ráðningarsamningi.

Heimilt er að gera kröfu um að umsækjandi búi yfir kunnáttu í íslensku og hafi þekkingu á íslenskri heilbrigðislöggjöf, lögum um málefni fatlaðs fólks svo og öðrum lögum og stjórnvaldsfyrirmælum sem talin eru nauðsynleg til að geta starfað sem þroskaþjálfi, einkum vegna öryggis og samskipta við þá sem þeir veita þjónustu.

Hafi að mati landlæknis ekki verið sýnt fram á að nám umsækjanda uppfylli kröfur 1. mgr. að teknu tilliti til starfsreynslu er heimilt að krefjast þess að umsækjandi gangist undir próf sem sýni fram á að hann búi yfir þeirri faglegu þekkingu og hæfni sem krafist er af þroskaþjálfa. Viðeigandi menntastofnun skal skipuleggja prófið í samráði við landlækni.

Starfsleyfi skv. 3. mgr. er gefið út við komu umsækjanda til starfa hér á landi.

4. gr. Umsagnir.

Áður en leyfi er veitt skv. 2. gr. á grundvelli menntunar utan Íslands skv. 3. mgr. 3. gr. skal landlæknir leita umsagnar menntavísindasviðs Háskóla Íslands um það hvort umsækjandi uppfylli skilyrði um menntun skv. 1. mgr. 3. gr. fyrir útgáfu starfsleyfis.

Landlækni er heimilt að leita umsagnar annarra aðila eftir þörfum.

III. KAFLI Réttindi og skyldur.

5. gr. Faglegar kröfur og ábyrgð.

Þroskaþjálfi skal sýna þeim sem hann veitir þjónustu virðingu og sinna störfum sínum af árvekni og trúmennsku og í samræmi við þær faglegu kröfur sem gerðar eru til stéttarinnar á hverjum tíma.

Þroskaþjálfa ber að þekkja skyldur sínar og virða siðareglur stéttarinnar, viðhalda þekkingu sinni og faglegri færni og tileinka sér nýjungar er varða starfið.

Þroskaþjálfi skal þekkja lög og reglugerðir sem gilda um heilbrigðisstarfsmenn, málefni fatlaðs fólks, heilbrigðisþjónustu svo og önnur lög og stjórnvaldsfyrirmæli eftir því sem við á.

Þroskaþjálfi ber ábyrgð á þeirri upplýsingagjöf, fræðslu, aðstoð og ráðgjöf sem hann veitir.

Í starfi þroskaþjálfa felst enn fremur að efla lífsgæði fatlaðs fólks og auka þátttöku þess í samfélaginu.

Þroskaþjálfi skal virða faglegar takmarkanir sínar og leita eftir aðstoð eða vísa þeim sem hann veitir þjónustu til annars heilbrigðisstarfsmanns eftir því sem nauðsynlegt er svo sem ef hann telur sig ekki geta veitt viðeigandi þjónustu.

6. gr. Upplýsingaskylda og færsla sjúkraskrár.

Um upplýsingaskyldu þroskaþjálfa gagnvart þeim sem hann veitir þjónustu fer samkvæmt ákvæðum laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997.

Um skyldu þroskaþjálfa til að veita landlækni upplýsingar, meðal annars vegna eftirlits og til gerðar heilbrigðisskýrslna, fer samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007.

Þroskaþjálfi skal, eftir því sem við á, færa sjúkraskrá samkvæmt ákvæðum laga um sjúkraskrár, nr. 55/2009, og reglugerðum sem settar eru samkvæmt þeim.

7. gr. Nemar.

Þroskaþjálfi ber ábyrgð á því að nemar, sem honum er falið að veita leiðsögn, hafi næga hæfni og þekkingu og fái nauðsynlegar leiðbeiningar og tilsögn til að inna af hendi störf sem hann felur þeim.

8. gr. Trúnaður og þagnarskylda.

Þroskaþjálfi skal gæta fyllstu þagmælsku um allt það sem hann kemst að í starfi sínu um heilsufar þess sem hann veitir þjónustu, ástand, sjúkdómsgreiningu, horfur og meðferð ásamt öðrum persónulegum upplýsingum. Þetta gildir ekki bjóði lög annað eða rökstudd ástæða er til þess að rjúfa þagnarskyldu vegna brýnnar nauðsynjar.

Samþykki þess sem hann veitir þjónustu eða forráðamanns, ef við á, leysir þroskaþjálfa undan þagnarskyldu.

Þagnarskylda samkvæmt þessari grein nær ekki til atvika sem þroskaþjálfa ber að tilkynna um samkvæmt öðrum lagaákvæðum. Í þeim tilvikum ber þroskaþjálfa skylda til að koma upplýsingum um atvik á framfæri við þar til bær yfirvöld.

Um trúnaðar- og þagnarskyldu þroskaþjálfa gilda jafnframt ákvæði laga um réttindi sjúklinga, ákvæði laga um sjúkraskrár og önnur lög eftir því sem við á.

IV. KAFLI Ýmis ákvæði.

9. gr. Gjaldtaka.

Um gjaldtöku vegna útgáfu starfsleyfis fer skv. 10. gr. laga um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991.

Um gjaldtöku vegna hvers konar umsýslu landlæknis vegna umsókna um starfsleyfi til viðbótar gjaldi skv. 1. mgr. og vegna prófa í faglegri þekkingu og færni fer samkvæmt reglugerð um gjaldtöku vegna umsókna um starfsleyfi og sérfræðileyfi heilbrigðisstarfsmanna, nr. 951/2012.

10. gr. Almenn ákvæði.

Ákvæði laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, laga um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007, laga um sjúkraskrár, nr. 55/2009, laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997, laga um málefni fatlaðs fólks, nr. 59/1992 svo og önnur lög og stjórnvaldsfyrirmæli gilda eftir því sem við á um þroskaþjálfa.

10. gr. a. Gildi eldri leyfa.

Þeir sem hlotið hafa starfsleyfi samkvæmt reglugerð nr. 215/1987, um störf, starfsvettvang og starfshætti þroskaþjálfa, með síðari breytingum, eða lögum nr. 18/1978, um þroskaþjálfa, með síðari breytingum, halda þeim réttindum óskertum.

11. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5., 30. og 31. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, öðlast gildi 1. janúar 2013. Frá sama tíma fellur brott reglugerð um störf, starfsvettvang og starfshætti þroskaþjálfa, nr. 215/1987, með síðari breytinum.

Ákvæði til bráðabirgða.

Leyfi skv. 2. gr. má veita þeim sem hófu nám í þroskaþjálfafræði við menntavísindasvið haustið 2017 eða fyrr og ljúka 180 ECTS BA-námi á þeirri námsleið í síðasta lagi í júní 2021.

Ákvæði til bráðabirgða.

Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. er landlækni heimilt til 1. maí 2021 að veita þeim starfsleyfi sem lokið hafa viðurkenndu námi í þroskaþjálfun samkvæmt lögum nr. 18/1978, um þroskaþjálfa, með síðari breytingum eða reglugerð nr. 215/1987, um störf, starfsvettvang og starfshætti þroskaþjálfa, með síðari breytingum, og hafa viðhaldið kunnáttu sinni með því að hafa starfað við greinina frá því að framangreindu námi lauk.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.