Prentað þann 8. nóv. 2024
1105/2005
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 200/1998 um búfjármörk,markaskrár og takmörkun á sammerkingum búfjár.
1. gr.
Viðauki I breytist og verður:
VIÐAUKI I
Varnarsvæði og litarmerking.
Litarmerkingu búfjár með varanlegum litum sbr. viðauka II skal haga eftir búsetu sem hér segir:
Varnarsvæði | Litur | Varnarlínur |
1. Landnámshólf | Grár | Sogslína: Ölfusá og Sog. Þingvallavatn. Bláskógalína úr Þingavallavatni í Kvígindisfell. Hvalfjarðarlína frá Kvígindisfelli um Hvalvatn í Hvalfjörð við Múlafjall. |
2. Borgarfjarðarhólf syðra | Gulur | Hvalfjarðarlína úr Hvalfirði við Múlafjall um Hvalvatn og Kvígindisfell að Matbrunnum við Uxahryggi. Andakílslína frá Matbrunnum um Reyðarvatn og Skorradalsvatn í Andakíl. |
3. Borgarfjarðarhólf nyrðra | Hvítur | Andakílslína. Hvalfjarðarlína frá Matbrunnum að Hrúðurkörlum við Þórisjökul.Tvídægrulína frá Langjökli um Arnarvatn að Kvíslavötnum. Hvítársíðulína frá Kvíslavötnum að Hvítá við Bjarnastaði. Hvítá, þaðan til ósa. |
4. Mýrahólf | Appelsínugulur | Hvítá í Borgarfirði, Hvítársíðulína, Tvídægrulína frá Kvíslavötnum að Svínadal norðan Tröllakirkju. Dalalína nálægt suðurmörkum Dalasýslu frá Svínadal að Hítará. Hítará, þaðan til ósa. |
5. Hnappadalshólf | Bleikur | Hítará, Dalalína frá Hítará til Skógarstrandar. Snæfellsnesslína úr Álftafirði í Skógarnes. |
6. Snæfellsnesshólf | Blár | Snæfellsnes vestan Snæfellsnesslínu. |
7. Dalahólf syðra | Gulur | Dalalína nálægt suðurmörkum Dalasýslu frá Skógarströnd að Svínadal inn af Haukadal. Tvídægrulína frá Svínadal að Skeggöxl vestan Hrútafjarðar. Hvammsfjarðarlína þaðan til Hvammsfjarðar milli Þorbergsstaða og Hrútsstaða. |
8. Dalahólf nyrðra | Grár | Hvammsfjarðarlína úr Hvammsfirði um Laxárdalsheiði til Hrútafjarðar. Gilsfjarðarlína úr Gilsfirði í Bitrufjörð. |
9. Steingrímsfjarðarhólf | Blár | Gilsfjarðarlína, Berufjarðarlína í Þorskafjarðarlínu á Kollabúðaheiði, þaðan í Steingrímsfjörð sunnan Hrófbergs. |
10. Reykjanesshólf | Hvítur | Berufjarðarlína úr Berufirði í Þorskafjarðarlínu. Þorskafjarðarlína úr Þorskafirði vestan Hjalla. |
11. Mið-Vestfjarðahólf | Gulur | Þorskafjarðarlína úr Þorskafirði í Steingrímsfjörð. Kollafjarðarlína úr Kollafirði um Gjörvidal í Ísafjörð. |
12. Vestfjarðahólf | Grænn | Kollafjarðarlína, Mjólkárlína sunnan Mjólkár. Rauðasandslína úr Stálfjalli um Skarðabrúnir að Kleifaheiði. Suðurfjarðalína þaðan eftir fjallgarðinum í Trostansfjörð. |
13. Rauðasandshólf | Fjólublár | Rauðasandslína úr Stálfjalli um Skarðabrúnir og Kleifaheiði í Ósafjörð. |
14. Arnarfjarðarhólf | Hvítur | Rauðasandslína úr Ósafirði að Kleifaheiði, Suðurfjarðalína þaðan í Trostansfjörð. |
15. Miðfjarðarhólf | Grænn | Hvammsfjarðarlína úr Hrútafirði sunnan Fjarðarhorns að Skeggöxl. Tvídægrulína frá Skeggöxl um Kvíslavötn í Arnarvatn. Miðfjarðarlína úr Arnarvatni um Miðfjarðarvatn í Miðfjörð. |
16. Vatnsnesshólf | Fjólublár | Miðfjarðarlína í Miðfjarðarvatn. Vatnsnesslína úr Miðfjarðarvatni í Síðukrók við Víðidalsá. |
17. Húnahólf | Brúnn | Vatnsnesslína, Miðfjarðarlína úr Miðfjarðarvatni í Arnarvatn. Tvídægrulína úr Arnarvatni í Langjökul, Kjalarlína úr Langjökli að Blöndu, Blanda, þaðan til ósa. |
18. Skagahólf | Bleikur | Blanda, Kjalarlína frá Blöndu að Hofsjökli, Héraðsvatnalína, þ.e. Jökulsá eystri og Héraðsvötn eystri. |
19. Skagafjarðarhólf | Gulur | Héraðsvatnalína og Tröllaskagalína á mörkum Skagafjarðar- og Eyjafjarðarsýslna og milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar. |
20. Eyjafjarðarhólf vestra | Grár | Tröllaskagalína. Eyjafjarðarlína. Eyjafjarðará og girðing úr Eyjafjarðará sunnan Bringu. |
20. a Grímsey | Blár | Grímsey, Grímseyjarhreppi. |
21. Eyjafjarðarhólf eystra | Appelsínugulur | Eyjafjarðarlína. Skjálfandafljót. Fjórðungakvísl. |
22. Skjálfandahólf | Hvítur | Skjálfandafljót. Sprengisandslína um Vonarskarð í Fjórðungakvísl. Gæsafjallalína norðan Skútustaðahrepps. Jökulsá á Fjöllum. |
23. Öxarfjarðarhólf | Grænn | Jökulsá á Fjöllum, Hólsfjallalína austan Öxarfjarðarhrepps. Sléttulína sunnan Melrakkasléttu. |
24. Sléttuhólf | Gulur | Melrakkaslétta norðan Sléttulínu. |
25. Norðausturlandshólf | Fjólublár | Sléttulína, Hólsfjallalína, Jökulsá á Fjöllum, Jökulsá á Brú. |
26. Héraðshólf | Appelsínugulur | Jökulsá á Brú, Lagarfljót, "Hallormsstaðarlína", Jökulsá í Fljótsdal. |
27. Austfjarðahólf | Bleikur | Lagarfljót frá ósum að Grímsá og Reyðarfjarðarlína frá Grímsá um Sandfell og Áreyjatind í Reyðarfjörð. |
28. Suðurfjarðahólf | Blár | Reyðarfjarðarlína, "Hallormsstaðarlína úr Grímsá", Hamarsá í Hamarsfirði. Hornafjarðarfljót (eystri kvísl). |
29. Suðursveitarhólf | Grár | Hornafjarðarfljót og Jökulsá á Breiðamerkursandi. |
30. Öræfahólf | Hvítur | Jökulsá á Breiðamerkursandi og Skeiðarársandslína við Sandgýgjukvísl. |
31. Síðuhólf | Bleikur | Skeiðarársandslína, Skaftá, Eldhraunslína úr Skaftá í Kúðafljót. |
32. Skaftártunguhólf | Fjólublár | Eldhraunslína, Skaftá, Tungnaá, Kýlingalína við Kirkjufellsvatn. Hólmsárlína. |
33. Álftavershólf | Grár | Kúðafljót og Hólmsá, Mælifellslína á Mælifellssandi, Mýrdalssandslína úr Moldheiði í Blautukvísl. |
34. Mýrdalshólf | Gulur | Mýrdalssandslína og Sólheimasandslína vestan Jökulsár. |
35. Rangárvallahólf | Grænn | Sólheimasandslína, Markarfljót og Syðri-Emstruá, Mælifellslína, Kýlingalína, Tungnaá, Sprengisandslína, Ytri-Rangá, Þjórsá. |
36. Árnesshólf | Blár | Þjórsá, Kjalarlína úr Hofsjökli í Langjökul norðan Hveravalla, Hvítá, Hlíðabæjalína úr Hagavatni í Brúará, Brúará. Hvalfjarðarlína úr Hrúðurkörlum við Þórisjökul í Kvígindisfell, Bláskógalína þaðan í Þingvallavatn vestan Þjóðgarðs. Sogslína, þ.e. Þingvallavatn, Sog og Ölfusá til ósa. |
37. Vestmannaeyjar | Appelsínugulur | Vestmannaeyjar. |
2. gr.
Viðauki II breytist og verður:
Sjá fylgiskjal I.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 6/1986 um afréttamálefni, fjallskil o.fl. og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim. Reglugerðin öðlast gildi frá og með 1. janúar 2006.
Landbúnaðarráðuneytinu, 9. desember 2005.
F. h. r.
Guðmundur B. Helgason.
Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir.
Fylgiskjal I.
(sjá PDF-skjal)
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.