Prentað þann 7. apríl 2025
1104/2021
Reglugerð um (8.) breytingu á reglugerð nr. 817/2012, um sóttvarnaráðstafanir.
1. gr.
Orðin "eða 4.000 kr. gjald fyrir hraðpróf á vegum heilsugæslu" í 1. málsl. 6. mgr. 11. gr. reglugerðarinnar falla brott.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 12., 17. og 18. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, og 1. tölul. 1. mgr. og 5. mgr. 29. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Heilbrigðisráðuneytinu, 29. september 2021.
F. h. r.
Ásta Valdimarsdóttir.
Ásthildur Knútsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.