Prentað þann 24. nóv. 2024
1102/2021
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 944/2014, um öryggi leikfanga og markaðssetningu þeirra á Evrópska efnahagssvæðinu.
1. gr.
Við fyrstu töflu 11. liðar 3. hluta II. viðauka við reglugerðina bætist þrjár nýjar færslur:
56) | Atranól (2,6-díhýdroxý-4-metýlbensaldehýð) | 526-37-4 |
57) | Klóróatranól (3-klóró-2,6-díhýdroxý-4-metýlbensaldehýð) | 57074-21-2 |
58) | Metýlheptínkarbónat | 111-12-6 |
Færsla 10 fyrir Metýlheptínkarbónat í annarri töflu 11. liðar 3. hluta II. viðauka við reglugerðina falli brott.
2. gr.
Í stað færslunnar fyrir sítrónellól í annarri töflu 11. liðar 3. hluta II. viðauka við reglugerðina komi eftirfarandi:
4) | Sítrónellól | 106-22-9, 1117-61-9, 7540-51-4 |
3. gr.
Við aðra töflu 11. liðar 3. hluta II. viðauka við reglugerðina bætist 61 ný færsla:
12) | Asetýlsedren | 32388-55-9 |
13) | Amýlsalisýlat | 2050-08-0 |
14) | trans-anetól | 4180-23-8 |
15) | Bensaldehýð | 100-52-7 |
16) | Kamfóra | 76-22-2, 464-49-3 |
17) | Karvón | 99-49-0, 6485-40-1, 2244-16-8 |
18) | β-karýófýllen (oxíð) | 87-44-5 |
19) | Rósaketón-4 (Damaskenón) | 23696-85-7 |
20) | α-damaskón (TMCHB) | 43052-87-5, 23726-94-5 |
21) | cis-β-damaskón | 23726-92-3 |
22) | δ-damaskón | 57378-68-4 |
23) | Dímetýlbensýlkarbinýlasetat (DMBCA) | 151-05-3 |
24) | Hexadekanólaktón | 109-29-5 |
25) | Hexametýlindanópýran | 1222-05-5 |
26) | (DL)-Límónen | 138-86-3 |
27) | Línalýlasetat | 115-95-7 |
28) | Mentól | 1490-04-6, 89-78-1, 2216-51-5 |
29) | Metýlsalisýlat | 119-36-8 |
30) | 3-metýl-5-(2,2,3-trímetýl-3-sýklópenten-1-ýl)-pent-4-en-2-ól | 67801-20-1 |
31) | α-pínen | 80-56-8 |
32) | β-pínen | 127-91-3 |
33) | Própýlídenþalíð | 17369-59-4 |
34) | Salisýlaldehýð | 90-02-8 |
35) | α-santalól | 115-71-9 |
36) | β-santalól | 77-42-9 |
37) | Sklareól | 515-03-7 |
38) | α-terpíneól | 10482-56-1, 98-55-5 |
39) | Terpíneól (blanda hverfna) | 8000-41-7 |
40) | Terpínólen | 586-62-9 |
41) | Tetrametýlasetýloktahýdrónaftalen | 54464-57-2, 54464-59-4, 68155-66-8, 68155-67-9 |
42) | Trímetýlbensenprópanól (Majantol) | 103694-68-4 |
43) | Vanillín | 121-33-5 |
44) | Ilmberkja (Cananga odorata) og ilmberkjuolía (Ylang-ylang oil) | 83863-30-3, 8006-81-3 |
45) | Olía úr berki atlassedrusar (Cedrus atlantica) | 92201-55-3, 8000-27-9 |
46) | Olía úr laufi kanilkassíu (Cinnamomum cassia) | 8007-80-5 |
47) | Olía úr kanilberki (Cinnamomum zeylanicum) | 84649-98-9 |
48) | Olía úr blómi beiskjuappelsínu (Citrus aurantium amara) | 8016-38-4 |
49) | Olía úr berki beiskjuappelsínu (Citrus aurantium amara) | 72968-50-4 |
50) | Olía úr berki bergamótappelsínu (Citrus bergamia), pressuð | 89957-91-5 |
51) | Olía úr berki sítrónu (Citrus limonum), pressuð | 84929-31-7 |
52) | Olía úr berki naflaappelsínu (Citrus sinensis (sh. Aurantium dulcis)), pressuð | 97766-30-8, 8028-48-6 |
53) | Olía úr sítrónugrasi (Cymbopogon citratus/schoenanthus) | 89998-14-1, 8007-02-01, 89998-16-3 |
54) | Olía úr laufum gúmviða (Eucalyptus spp.) | 92502-70-0, 8000-48-4 |
55) | Olía úr laufum/blómum negultrés (Eugenia caryophyllus) | 8000-34-8 |
56) | Læknajasmína (Jasminum grandiflorum/officinale) | 84776-64-7, 90045-94-6, 8022-96-6 |
57) | Blýantseinir (Juniperus virginiana) | 8000-27-9, 85085-41-2 |
58) | Olía úr ávexti lárviðar (Laurus nobilis) | 8007-48-5 |
59) | Olía úr laufum lárviðar (Laurus nobilis) | 8002-41-3 |
60) | Olía úr fræjum lárviðar (Laurus nobilis) | 84603-73-6 |
61) | Blendingur ilmvendils (Lavandula hybrida) | 91722-69-9 |
62) | Ilmvendill (Lavandula officinalis) | 84776-65-8 |
63) | Piparmynta (Mentha piperita) | 8006-90-4, 84082-70-2 |
64) | Hrokkinmynta (Mentha spicata) | 84696-51-5 |
65) | Föstulilja (Narcissus spp.) | Ýmsar tegundir, þ.m.t. 90064-25-8 |
66) | Ilmpelargónía (Pelargonium graveolens) | 90082-51-2, 8000-46-2 |
67) | Pinus mugo | 90082-72-7 |
68) | Runnafura (Pinus pumila) | 97676-05-6 |
69) | Ilmstjarna (Pogostemon cablin) | 8014-09-3, 84238-39-1 |
70) | Olía úr rósum (Rosa spp.) | Ýmsar tegundir, þ.m.t. 8007-01-0, 93334-48-6, 84696-47-9, 84604-12-6, 90106-38-0, 84604-13-7, 92347-25-6 |
71) | Hvítur sandelviður (Santalum album) | 84787-70-2, 8006-87-9 |
72) | Terpentínuolía | 8006-64-2, 9005-90-7, 8052-14-0 |
4. gr.
Í stað færslunnar fyrir ál í töflunni í 13. lið 3. hluta II. viðauka við reglugerðina komi eftirfarandi:
Ál | 2250 | 560 | 28130 |
5. gr.
Við lista sértækra viðmiðunarmarka í viðbæti C við II. viðauka við reglugerðina bætist:
Efni | CAS-númer | Viðmiðunarmörk |
Formaldehýð | 50-00-0 | 1,5 mg/l (flæðimörk) í fjölliðuefni leikfanga 0,1 ml/m³ (losunarmörk) í viði sem er límdur saman með trjákvoðu og notaður í leikföng 30 mg/kg (viðmiðunarmörk fyrir innihald) í textílefni sem er notað í leikföng 30 mg/kg (viðmiðunarmörk fyrir innihald) í leðri sem er notað í leikföng 30 mg/kg (viðmiðunarmörk fyrir innihald) í pappa sem er notaður í leikföng 10 mg/kg (viðmiðunarmörk fyrir innihald) í leikföngum sem eru að stofni til úr vatni |
6. gr.
Við 30. gr. reglugerðarinnar bætist fjórir nýir stafliðir, svohljóðandi:
- Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1922 frá 18. nóvember 2019 um breytingu á 13. lið í III. hluta II. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/48/EB um öryggi leikfanga, að því er varðar ál, í því skyni að laga viðaukann að þróun á sviði tækni og vísinda, eins og hún var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 209/2021 frá 9. júlí 2021. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 57, frá 2. september 2021, bls. 212-214.
- Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1929 frá 19. nóvember 2019 um breytingu, að því er varðar samþykkt tiltekinna viðmiðunarmarka um íðefni, sem eru notuð í tiltekin leikföng, á viðbæti C við II. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/48/EB að því er varðar formaldehýð, eins og hún var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 209/2021 frá 9. júlí 2021. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 57, frá 2. september 2021, bls. 215-218.
- Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2088 frá 11. desember 2020 um breytingu á II. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/48/EB að því er varðar merkingar ofnæmisvaldandi ilmefna í leikföngum, eins og hún var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 210/2021 frá 9. júlí 2021. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 57, frá 2. september 2021, bls. 219-223.
- Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2089 frá 11. desember 2020 um breytingu á II. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/48/EB að því er varðar bann við notkun ofnæmisvaldandi ilmefna í leikföngum, eins og hún var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 210/2021 frá 9. júlí 2021. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 57, frá 2. september 2021, bls. 224-227.
7. gr. Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 10. gr. og 3. mgr. 13. gr., sbr. 3. mgr. 27. gr. laga um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu nr. 134/1995, með síðari breytingum og öðlast hún þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 17. september 2021.
F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,
Ingvi Már Pálsson.
Daði Ólafsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.