Prentað þann 3. feb. 2026
1089/2025
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 780/2025, um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði vegna myndgreininga sem veittar eru án samnings við Sjúkratryggingar Íslands.
1. gr.
Í stað dagsetningarinnar "1. nóvember 2025" í 2. gr. reglugerðarinnar kemur: 1. mars 2026.
2. gr.
Í stað dagsetningarinnar "1. nóvember 2025" í 10. gr. reglugerðarinnar kemur: 1. mars 2026.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 38. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar, öðlast þegar gildi.
Heilbrigðisráðuneytinu, 20. október 2025.
Alma D. Möller.
Pétur Örn Pálmarsson.
B deild - Útgáfudagur: 22. október 2025
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.