Prentað þann 7. apríl 2025
Breytingareglugerð
1089/2020
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 393/2019 um stuðning við útgáfu bóka á íslensku.
1. gr.
Við 4. gr. reglugerðarinnar, bætist eftirfarandi stafliður:
- Allar tekjur vegna auglýsinga og kynninga skulu reiknast til frádráttar þegar endurgreiðsluhæfur kostnaður vegna bókar er ákvarðaður.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 11. gr. laga um stuðning við útgáfu bóka á íslensku nr. 130/2018, öðlast þegar gildi.
Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 7. október 2020.
Lilja D. Alfreðsdóttir.
Páll Magnússon.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.