Prentað þann 24. des. 2024
1089/2012
Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur ljósmæðra og skilyrði til að hljóta starfsleyfi og sérfræðileyfi.
I. KAFLI Almenn ákvæði.
1. gr. Gildissvið.
Reglugerð þessi gildir um ljósmæður sem hafa starfsleyfi og sérfræðileyfi landlæknis skv. 2. og 5. gr.
II. KAFLI Starfsleyfi.
2. gr. Starfsheiti.
Rétt til að kalla sig ljósmóður og starfa sem slík hér á landi hefur sá einn sem fengið hefur til þess leyfi landlæknis.
3. gr. Skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis.
Leyfi skv. 2. gr. má veita þeim sem lokið hafa BS-prófi í hjúkrunarfræði frá hjúkrunarfræðideild heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands eða heilbrigðisvísindasviði Háskólans á Akureyri og kandídatsnámi í ljósmóðurfræði frá hjúkrunarfræðideild heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands.
Einnig má staðfesta starfsleyfi frá ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og Sviss eða veita starfsleyfi á grundvelli menntunar frá fyrrgreindum ríkjum. Um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi ljósmóður sem uppfyllir skilyrði tilskipunar 2005/36/EB, um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi, með síðari breytingum, fer samkvæmt reglugerð um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsmanna frá öðrum EES-ríkjum, nr. 461/2011, eða samkvæmt Norðurlandasamningi um sameiginlegan norrænan vinnumarkað fyrir ákveðnar heilbrigðisstéttir og dýralækna, nr. 36/1993, sbr. breytingu nr. 6/2001.
Þá er heimilt að veita starfsleyfi þeim sem lokið hafa sambærilegu prófi frá menntastofnun í ríki utan EES eða Sviss sem viðurkennd er sem slík af heilbrigðisyfirvöldum hér á landi og heilbrigðisyfirvöldum þess ríkis þar sem námið var stundað.
Um frekari skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis fer skv. 13. gr.
4. gr. Umsagnir.
Áður en leyfi er veitt skv. 2. gr. á grundvelli menntunar utan Íslands skv. 3. mgr. 3. gr. skal landlæknir leita umsagnar námsbrautar í ljósmóðurfræði við hjúkrunarfræðideild heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands um það hvort umsækjandi uppfyllir skilyrði um menntun skv. 1. mgr. 3. gr. fyrir veitingu starfsleyfis.
Landlækni er heimilt að leita umsagnar annarra aðila eftir þörfum.
III. KAFLI Sérfræðileyfi í ljósmóðurfræði.
5. gr. Sérfræðileyfi.
Rétt til að kalla sig sérfræðing á klínískum sérsviðum ljósmóðurfræði og starfa sem slíkur hér á landi hefur sá einn sem hefur fengið til þess leyfi landlæknis.
6. gr. Skilyrði fyrir sérfræðileyfi.
Sérfræðileyfi má veita á klínískum sérsviðum ljósmóðurfræði. Skilyrði er að sérfræðinám umsækjanda sé skilgreint innan þess sérsviðs sem umsókn hans um sérfræðileyfi tekur til. Viðkomandi sérsvið skal standa á traustum fræðilegum grunni og eiga sér samsvörun á viðurkenndum alþjóðlegum vettvangi.
Með klínískum sérsviðum er átt við svið þar sem störf fela í sér bein samskipti við sjúklinga, sem og forvarnir og ljósmóðurfræðilega greiningu og meðferð.
Til að ljósmóðir geti átt rétt á að hljóta sérfræðileyfi skv. 5. gr. skal hún uppfylla eftirtaldar kröfur:
- hún skal hafa starfsleyfi sem ljósmóðir hér á landi skv. 2. gr. og
- hún skal hafa lokið meistaraprófi eða doktorsprófi í ljósmóðurfræði frá viðurkenndum háskóla eða hafa sambærilega menntun og
- hún skal hafa starfað við ljósmóðurstörf að loknu prófi skv. 2. tölul. sem svarar til að minnsta kosti tveggja ára í fullu starfi á því sérsviði sem umsókn hennar um sérfræðileyfi tekur til. Sé starfshlutfall lægra, lengist starfstíminn sem því nemur.
Til frádráttar geta komið allt að tólf mánuðir í fullu starfi ef viðkomandi hefur starfað samhliða doktorsnámi á viðkomandi sérsviði.
Um frekari skilyrði fyrir veitingu sérfræðileyfis fer skv. 13. gr.
7. gr. Sérsvið.
Sérfræðileyfi má veita á eftirtöldum klínískum sérsviðum ljósmóðurfræði:
- Kynheilbrigði og forvörnum.
- Meðgönguvernd og fósturgreiningu.
- Fæðingarhjálp.
- Sængurlegu og brjóstagjöf.
Heimilt er að tilgreina áherslusvið sem umsækjandi hefur sérhæft sig í innan klínískra sérsviða.
8. gr. Umsókn og umsagnir.
Umsókn um sérfræðileyfi í ljósmóðurfræði, ásamt gögnum sem staðfesta menntun og starfsreynslu og öðrum nauðsynlegum fylgiskjölum, skal senda til landlæknis.
Áður en sérfræðileyfi er veitt skv. 5. gr. skal landlæknir leita umsagnar námsbrautar í ljósmóðurfræði við hjúkrunarfræðideild heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands um hvort umsækjandi uppfylli skilyrði skv. 6. gr.
Landlækni er heimilt að skipa sérstaka mats- og umsagnarnefnd til að meta umsóknir um sérfræðileyfi.
Landlækni er heimilt að leita umsagnar annarra aðila eftir þörfum.
IV. KAFLI Réttindi og skyldur.
9. gr. Faglegar kröfur og ábyrgð.
Ljósmóðir skal sýna sjúklingi virðingu og sinna störfum sínum af árvekni og trúmennsku og í samræmi við þær faglegu kröfur sem gerðar eru til stéttarinnar á hverjum tíma.
Ljósmóður ber að þekkja skyldur sínar og virða siðareglur stéttarinnar, viðhalda þekkingu sinni og faglegri færni og tileinka sér nýjungar er varða starfið.
Ljósmóðir skal þekkja lög og reglugerðir sem gilda um heilbrigðisstarfsmenn og heilbrigðisþjónustu og önnur lög og stjórnvaldsfyrirmæli eftir því sem við á.
Ljósmóðir ber ábyrgð á þeim forvörnum, ráðgjöf, ljósmóðurfræðilegri greiningu og meðferð sem hún veitir.
Ljósmæður starfa við meðgönguvernd, foreldrafræðslu, fæðingarhjálp og sængurlegu.
Ljósmóðir skal virða faglegar takmarkanir sínar og leita eftir aðstoð eða vísa sjúklingi til annars heilbrigðisstarfsmanns eftir því sem nauðsynlegt er, svo sem ef ljósmóðir telur sig ekki geta veitt sjúklingi viðeigandi heilbrigðisþjónustu.
10. gr. Upplýsingaskylda og færsla sjúkraskrár.
Um upplýsingaskyldu ljósmóður gagnvart sjúklingi fer samkvæmt ákvæðum laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997.
Um skyldu ljósmóður til að veita landlækni upplýsingar, meðal annars vegna eftirlits og til gerðar heilbrigðisskýrslna, fer samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007.
Ljósmóðir skal, eftir því sem við á, færa sjúkraskrá samkvæmt ákvæðum laga um sjúkraskrár, nr. 55/2009, og reglugerðum sem settar eru samkvæmt þeim.
11. gr. Aðstoðarmenn og nemar.
Ljósmóðir ber ábyrgð á því að aðstoðarmenn og nemar, sem starfa undir hennar stjórn, hafi næga hæfni og þekkingu og fái nauðsynlegar leiðbeiningar og tilsögn til að inna af hendi störf sem hún felur þeim.
12. gr. Trúnaður og þagnarskylda.
Ljósmóðir skal gæta fyllstu þagmælsku um allt það sem hún kemst að í starfi sínu um heilsufar sjúklings, ástand, sjúkdómsgreiningu, horfur og meðferð ásamt öðrum persónulegum upplýsingum. Þetta gildir ekki bjóði lög annað eða rökstudd ástæða er til þess að rjúfa þagnarskyldu vegna brýnnar nauðsynjar.
Samþykki sjúklings eða forráðamanns, ef við á, leysir ljósmóður undan þagnarskyldu.
Þagnarskylda samkvæmt þessari grein nær ekki til atvika sem ljósmóður ber að tilkynna um samkvæmt öðrum lagaákvæðum. Í þeim tilvikum ber ljósmóður skylda til að koma upplýsingum um atvik á framfæri við þar til bær yfirvöld.
Um trúnaðar- og þagnarskyldu ljósmóður gilda jafnframt ákvæði laga um réttindi sjúklinga, ákvæði laga um sjúkraskrár og önnur lög eftir því sem við á.
V. KAFLI Ýmis ákvæði.
13. gr. Frekari skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis og sérfræðileyfis.
Umsækjandi um starfsleyfi sem ljósmóðir skv. 2. gr. og sérfræðileyfi í ljósmóðurfræði skv. 5. gr. frá ríki utan EES og Sviss sem Ísland hefur ekki samið við um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi, skal meðal annars leggja fram gögn um ríkisfang, innihald náms og námslengd, ásamt prófskírteini, starfsleyfi ef starfsgreinin er löggilt í því ríki sem umsækjandi kemur frá, fyrirhuguð störf hér á landi svo og önnur gögn og vottorð sem landlæknir telur nauðsynleg vegna útgáfu starfsleyfis.
Áður en umsókn um starfsleyfi eða sérfræðileyfi er tekin til efnislegrar meðferðar þarf eftir atvikum að liggja fyrir staðfest afrit umsóknar um atvinnu- og dvalarleyfi ásamt undirrituðum ráðningarsamningi.
Heimilt er að gera kröfu um að umsækjandi búi yfir kunnáttu í íslensku og hafi þekkingu á íslenskri heilbrigðislöggjöf svo og öðrum lögum og stjórnvaldsfyrirmælum sem talin eru nauðsynleg til að geta starfað sem ljósmóðir, einkum vegna öryggis og samskipta við sjúklinga.
Hafi að mati landlæknis ekki verið sýnt fram á að nám umsækjanda uppfylli kröfur skv. 1. mgr. 3. gr. eða 6. gr. að teknu tilliti til starfsreynslu er heimilt að krefjast þess að umsækjandi gangist undir próf sem sýni fram á að hann búi yfir þeirri faglegu þekkingu og hæfni sem krafist er af ljósmóður eða ljósmóður með sérfræðileyfi. Viðeigandi menntastofnun skal skipuleggja próf fyrir umsækjanda í samráði við landlækni.
Starfsleyfi og sérfræðileyfi eru gefin út við komu umsækjanda til starfa hér á landi.
14. gr. Gjaldtaka.
Um gjaldtöku vegna útgáfu starfsleyfis og sérfræðileyfis fer skv. 10. gr. laga um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991.
Um gjaldtöku vegna hvers konar umsýslu landlæknis vegna umsókna um starfsleyfi og sérfræðileyfi sem ljósmóðir til viðbótar gjaldi skv. 1. mgr. og vegna prófa í faglegri þekkingu og færni fer samkvæmt reglugerð um gjaldtöku vegna umsókna um starfsleyfi og sérfræðileyfi heilbrigðisstarfsmanna, nr. 951/2012.
15. gr. Almenn ákvæði.
Ákvæði laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, laga um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007, laga um sjúkraskrár, nr. 55/2009, laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997, svo og önnur lög og stjórnvaldsfyrirmæli gilda eftir því sem við á um ljósmæður.
15. gr. a. Gildi eldri leyfa.
Þeir sem hlotið hafa starfsleyfi samkvæmt ljósmæðralögum, nr. 67/1984, halda þeim réttindum óskertum.
16. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5., 8., 30. og 31. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, öðlast gildi 1. janúar 2013.
Ákvæði til bráðabirgða.
Þrátt fyrir ákvæði 3. og 6. gr. er landlækni heimilt til 1. maí 2021 að veita starfsleyfi þeim sem lokið hafa prófi í ljósmóðurfræðum frá hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands eða prófi frá Ljósmæðraskóla Íslands samkvæmt ljósmæðralögum nr. 67/1984, með síðari breytingum, og hafa viðhaldið kunnáttu sinni með því að hafa starfað við greinina frá því að framangreindu námi lauk.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.