Fara beint í efnið

Prentað þann 23. okt. 2026

Breytingareglugerð

1063/2026

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 550/2015 um sjúkraskrár.

1. gr.

Við reglugerðina bætist ný grein ásamt fyrirsögn, sem verður 16. gr. a, svohljóðandi:

16. gr. a Skráning bólusetninga í lyfjabúðum.

Heilbrigðisstarfsmönnum sem framkvæma bólusetningar í lyfjabúðum er heimill skráningaraðgangur að bólusetningagrunni sóttvarnalæknis að því marki sem nauðsynlegt er.

Þegar heilbrigðisstarfsmaður framkvæmir bólusetningu í lyfjabúð telst skráning upplýsinga um bólusetninguna í bólusetningagrunn sóttvarnalæknis jafngilda fullnægjandi færslu sjúkraskrár samkvæmt ákvæðum laga um sjúkraskrár. Skal skráningin uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til lágmarksskráningar samkvæmt lögum um sjúkraskrár og reglugerð þessari eftir því sem við á.

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 24. gr. laga um sjúkraskrár, nr. 55/2009, öðlast þegar gildi.

Heilbrigðisráðuneytinu, 5. október 2026.

Alma D. Möller.

Sigurður Kári Árnason.

B deild - Útgáfudagur: 7. október 2026

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.