Prentað þann 22. des. 2024
1063/2019
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1165/2015 um gildistöku reglugerða framkvæmdastjórnarinnar (ESB) um ríkisaðstoð.
1. gr.
Við 2. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir stafliðir, svohljóðandi:
- Viðbót við almenna hópundanþágu frá tilkynningarskyldu. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1084 frá 14. júní 2017 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 651/2014 að því er varðar aðstoð vegna grunnvirkja hafna og flugvalla, tilkynningarmörk fyrir aðstoð vegna menningar og varðveislu menningararfleifðar og aðstoð vegna íþróttagrunnvirkja og fjölnota tómstundagrunnvirkja og svæðisbundin rekstraraðstoðarkerfi á ystu svæðum og breytingu á reglugerð (ESB) nr. 702/2014 að því er varðar útreikning á aðstoðarhæfum kostnaði, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 185/2017 frá 22. september 2017.
- Minniháttaraðstoð vegna þjónustu er hefur almenna, efnahagslega þýðingu - framlenging. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1923 frá 7. desember 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 360/2012 að því er varðar gildistíma hennar, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 266/2019 frá 25. október 2019.
2. gr.
Við 3. gr. reglugerðarinnar bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Reglugerð framkvæmdarstjórnarinnar (ESB) 2017/1084, sbr. d-lið 1. gr., er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 67/2017, 19. október 2017, bls. 668. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 185/2017 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 52/2019, 27. júní 2019, bls. 67.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1923, sbr. e-lið 1. gr., er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 90/2019, 7. nóvember 2019, bls. 348. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 266/2019 verður birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 32. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005 og öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 22. nóvember 2019.
F. h. r.
Sigurður H. Helgason.
Haraldur Steinþórsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.