Prentað þann 22. des. 2024
1063/2012
Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 55/2009, um styrki til kaupa á næringarefnum og sérfæði.
1. gr.
Í stað orðsins "skírteini" í 4. mgr. 4. gr. og sama orðs hvarvetna annars staðar í reglugerðinni og fylgiskjali við hana kemur, í viðeigandi beygingarmynd og með eða án greinis eftir atvikum: innkaupaheimild.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á fylgiskjalinu "Næringarefni og sérfæði frá Sjúkratryggingum Íslands" með reglugerðinni:
Fyrri málsliður í Skýringum og skilgreiningum í upphafi fylgiskjals orðast svo:
70/90/100%: Þátttaka Sjúkratrygginga Íslands í greiðslu næringarefnis eða sérfæðis er 70%, 90% eða 100%.
Flokkur 98 03 06 Næring um slöngu. Í stað orðsins "sjúklings" í 2. máls. 1. mgr. og í fyrirsögn síðar í málsgreininni kemur: einstaklings.
Við flokkinn 98 06 Lífsnauðsynleg næringarviðbót vegna vannæringar og sérfæði bætist:
Flokkur 98 06 27 Glútensnautt fæði (sérfæði) vegna ofnæmis/óþols fyrir hveiti.
Glútenóþol skal staðfest af barnalækni eða meltingarsérfræðingi en dermatitis herpeti-formis skal staðfestur af húðlækni.
Hveitiofnæmi skal staðfest af barnaofnæmislækni eða ofnæmislækni.
Sjúkratryggingar Íslands niðurgreiða vörur í þessum flokki fyrir börn að 18 ára aldri. Sjúkratryggingar Íslands greiða 70% á grundvelli innkaupaheimildar þó að hámarki 14.000 kr. á mánuði.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 27. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, öðlast gildi 1. janúar 2013.
Velferðarráðuneytinu, 26. nóvember 2012.
Guðbjartur Hannesson.
Hrönn Ottósdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.