Prentað þann 12. nóv. 2026
1062/2026
Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 1495/2025, um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu.
1. gr.
Á eftir 1. málsl. 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Einnig gjöld fyrir þjónustu sem veitt er utan heilsugæslustöðva á grundvelli samnings skv. IV. kafla laga um sjúkratryggingar, sbr. 2. mgr. 17. gr. laganna.
2. gr.
Á eftir orðinu "undantekningum" í 1. tölul. 5. gr. reglugerðarinnar kemur: þ.m.t. greiðslur vegna þjónustu sem veitt er utan heilsugæslustöðva á grundvelli samnings við Sjúkratryggingar Íslands.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr. reglugerðarinnar:
- Á eftir 1. málsl. 1. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Sé bólusetning framkvæmd utan heilsugæslustöðva á grundvelli samnings við Sjúkratryggingar Íslands skal sjúkratryggður greiða, auk komugjalds skv. 1. mgr. 8. gr., gjald miðað við kostnaðarverð/innkaupsverð fyrir hvern skammt bóluefnis.
- Á eftir 2. málsl. 2. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Hið sama gildir um bólusetningar sem framkvæmdar eru utan heilsugæslustöðva á grundvelli samnings við Sjúkratryggingar Íslands.
4. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 29. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, öðlast þegar gildi.
Heilbrigðisráðuneytinu, 5. október 2026.
Alma D. Möller.
Sigurður Kári Árnason.
B deild - Útgáfudagur: 7. október 2026
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.