Prentað þann 17. apríl 2025
1061/2020
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1051/2020, takmörkun á samkomum vegna farsóttar.
1. gr.
Nýr málsliður bætist við 5. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, svohljóðandi: Grímuskylda skv. 1. mgr. 4. gr. á ekki við um börn sem fædd eru 2011 og síðar.
2. gr.
Á undan orðunum "og spilasölum" í 2. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar kemur: spilakössum.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, tekur þegar gildi.
Heilbrigðisráðuneytinu, 1. nóvember 2020.
F. h. r.
Ásta Valdimarsdóttir.
Ásthildur Knútsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.