Prentað þann 6. nóv. 2026
Breytingareglugerð
1055/2024
Reglugerð um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Haítí, nr. 55/2023.
1. gr. Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:
| 1.3 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2024/1804 frá 24. júní 2024 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2022/2319 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins á Haítí, sbr. fylgiskjal 1.3. | |
| 2.3 | Reglugerð ráðsins (ESB) 2024/1803 frá 24. júní 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) 2022/2309 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins á Haítí, sbr. fylgiskjal 2.3. |
2. gr. Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 2. september 2024.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Martin Eyjólfsson.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.