Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

1055/2021

Reglugerð um (12.) breytingu á reglugerð nr. 900/2018 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470 um að koma á fót skrá Sambandsins yfir nýfæði í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 um nýfæði.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast fimm nýir töluliðir, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/50 frá 22. janúar 2021 um leyfi fyrir rýmkun á notkun og breytingum á nákvæmum skilgreiningum á nýfæðinu 2´-fúkósýllaktósa/dífúkósýllaktósa-blöndu og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/2470. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 166/2021, frá 11. júní 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 49, frá 22. júlí 2021, bls. 119.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/51 frá 22. janúar 2021 um leyfi fyrir breytingum á skilyrðum fyrir notkun á nýfæðinu trans-resveratróli samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 166/2021, frá 11. júní 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 49, frá 22. júlí 2021, bls. 122.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/82 frá 27. janúar 2021 um leyfi til að setja á markað 6´-síalýllaktósanatríumsalt sem nýfæði samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 166/2021, frá 11. júní 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 49, frá 22. júlí 2021, bls. 125.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/96 frá 28. janúar 2021 um leyfi til að setja á markað 3´-síalýllaktósanatríumsalt sem nýfæði samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 166/2021, frá 11. júní 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 49, frá 22. júlí 2021, bls. 132.
  5. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/120 frá 2. febrúar 2021 um leyfi til að setja á markað repjufræsduft, fitusneytt að hluta til, úr Brassica rapa L. og Brassica napus L. sem nýfæði samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 166/2021, frá 11. júní 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 49, frá 22. júlí 2021, bls. 139.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli, með síðari breytingum.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 8. september 2021.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Kolbeinn Árnason.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.