Prentað þann 24. nóv. 2024
1054/2019
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 474/2017 um leyfi til að stunda farþegaflutninga og farmflutninga á landi.
1. gr. Markmið.
Markmið þessarar reglugerðar er að kveða á um tímabundnar ráðstafanir sem gilda um vöruflutninga á vegum milli Evrópska efnahagssvæðisins og Bretlands í kjölfar útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu.
2. gr. Innleiðing.
Við 20. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, svohljóðandi:
- Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/501 um sameiginlegar reglur til að tryggja grunntengjanleika í vöruflutningum á vegum að því er varðar útgöngu Sameinaða konungsríkisins Stóra-Bretlands og Norður-Írlands úr Sambandinu frá 25. mars 2019, eins og hún er tekin upp í EES-samninginn, sbr. ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar nr. 105/2019 frá 11. apríl 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 37, frá 16. maí 2019, bls. 166-175.
3. gr. Gildistaka og lagastoð.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 11. gr., sbr. 34. gr. laga nr. 28/2017 um farþegaflutninga og farmflutninga á landi og öðlast gildi þann dag er Bretland gengur úr Evrópusambandinu án útgöngusamnings.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 13. nóvember 2019.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.