Prentað þann 22. des. 2024
1047/2019
Reglugerð um (16.) breytingu á reglugerð nr. 167/2015 um lyfjafræðilega virk efni og flokkun þeirra er varðar hámarksgildi leifa í matvælum úr dýraríkinu.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 80. tölul., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/238 frá 8. febrúar 2019 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 37/2010 til að flokka efnið óvótransferrín með tilliti til hámarksgildis leifa. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 224/2019, frá 27. september 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 86, frá 24. október 2019, bls. 385.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 96/1997 um slátrun og sláturafurðir og lögum nr. 66/1998 um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, öll með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 14. nóvember 2019.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Iðunn Guðjónsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.