Prentað þann 23. okt. 2026
1043/2026
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð um riðuveiki í fé, nr. 1570/2025.
1. gr.
Við 18. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, sem verður 2. mgr., svohljóðandi:
Þegar afbrigðileg riðuveiki hefur verið staðfest af rannsóknastofu er ekki krafist sérstakra aðgerða.
2. gr.
22. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993. Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 23. september 2026.
Hanna Katrín Friðriksson.
Elísabet Anna Jónsdóttir.
B deild - Útgáfudagur: 30. september 2026
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.