Fara beint í efnið

Prentað þann 16. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 15. ágúst 2023

1018/2022

Reglugerð um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2022/2023.

1. gr. Heildaraflaheimildir.

Á fiskveiðiárinu 2022/2023 skal matvælaráðherra úthluta aflamarki sem nemur allt að 4.900 þorskígildistonnum af botnfiski og ráðstafa til stuðnings byggðarlögum, þannig:

  1. Til minni byggðarlaga sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi og háð eru veiðum og/eða vinnslu á botnfiski.
  2. Til byggðarlaga sem orðið hafa fyrir óvæntri skerðingu á heildaraflaheimildum fiskiskipa sem gerð hafa verið út og landað hafa afla í viðkomandi byggðarlögum og sem veruleg áhrif hefur haft á atvinnuástand í byggðarlögunum. Heimilt er að ráðstafa aflaheimildum samkvæmt þessum lið til allt að þriggja ára í senn.

Byggðarlög skv. 1. mgr. eru byggðakjarnar sem liggja að sjó og eru háðir veiðum og/eða vinnslu á sjávarafla. Minni byggðarlög teljast byggðarlög með færri íbúum en 2.000, miðað við 1. janúar 2022.

2. gr. Skipting aflaheimilda eftir botnfisktegundum.

Aflaheimildir, skv. 1. gr. skulu skiptast á eftirgreindar tegundir: Þorsk, ýsu, ufsa, steinbít, gullkarfa, keilu og löngu samkvæmt eftirfarandi töflu:

Tegundir Tonn Þorskígildislestir
Þorskur 3.500 2.940
Ýsa 1.100 930
Ufsi 1.400 707
Steinbítur 155 82
Gullkarfi 300 185
Keila 43 10
Langa 96 46
Samtals: 6.594 4.900

3. gr. Útreikningur á aflaheimildum til byggðarlaga.

Við útreikning á aflaheimildum sem koma í hlut hvers byggðarlags skal leggja til grundvallar eftirfarandi forsendur:

  1. Ráðuneytið skal reikna út aflaheimildir, skv. 1. mgr. 3. gr. sem koma í hlut hvers byggðarlags þar sem íbúar eru færri en 2.000 þann 1. janúar 2022. Við þann útreikning skal gefa hverju byggðarlagi punkta sem fundnir eru þannig:

    1. Fyrir hvert 0,1% sem botnfiskafli fiskiskipa hefur mest dregist saman, frá fiskveiðiárinu 2012/2013 að telja til fiskveiðiársins 2021/2022, sem hlutfall af heildarbotnfiskafla allra byggðarlaga með færri en 2.000 íbúa þann 1. janúar 2022, skal gefa tvo punkta.
    2. Fyrir hvert 0,1% sem botnfiskaflaheimildir fiskiskipa frá byggðarlagi hafa mest dregist saman, frá fiskveiðiárinu 2012/2013 að telja til fiskveiðiársins 2022/2023, sem hlutfall af heildarbotnfiskaflaheimildum allra byggðarlaga með færri en 2.000 íbúa þann 1. janúar 2022, skal gefa tvo punkta.
    3. Fyrir hvert 0,1% sem vinnsla botnfiskafla í byggðarlagi hefur mest dregist saman, frá fiskveiðiárinu 2012/2013 að telja til fiskveiðiársins 2021/2022, sem hlutfall af heildarbotnfiskafla sem unninn hefur verið í öllum byggðarlögum með færri en 2.000 íbúa þann 1. janúar 2022, skal gefa fjóra punkta.

    Ráðuneytið metur hvaða viðmiðunarár er hagstæðast hverju byggðarlagi til útreiknings aflaheimilda samkvæmt þessari reglugerð og leggur þar til grundvallar tölulegar upplýsingar frá Fiskistofu. Sama fiskveiðiárið skal ávallt lagt til grundvallar við mat á öllum þáttum fyrir hvert byggðarlag, sbr. 1.-3. tl. 1. mgr., og hafi aukning orðið í einum þætti milli viðmiðunarára kemur hún til frádráttar. Samanlagðir punktar vegna samdráttar í einstökum byggðarlögum ráða því hversu mikið af aflaheimildum kemur í þeirra hlut samkvæmt þessari grein en skulu þó að lágmarki vera 15 þorskígildistonn og að hámarki 275 þorskígildistonn.
    Komi í ljós veruleg breyting á reiknuðum aflaheimildum samkvæmt þessari grein skal ráðuneytið kanna, hvort raunverulegar breytingar hafi orðið á útgerð eða botnfiskvinnslu í viðkomandi byggðarlagi. Hafi svo ekki orðið er heimilt að úthluta aflaheimildum samkvæmt þessari grein til viðkomandi byggðarlaga. Úthlutaðar aflaheimildir til viðkomandi byggðarlaga skulu þó ekki vera hærri en úthlutaðar aflaheimildir á fiskveiðiárinu 2021/2022 að teknu tilliti til breytinga á ráðstöfun skv. 3. mgr. 2. gr. reglugerðar um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2022/2023.

  2. Ráðuneytið skal reikna út hve miklar aflaheimildir koma í hlut hvers byggðarlags, skv. 2. mgr. 3. gr. Við þann útreikning skal leggja eftirfarandi forsendur til grundvallar:
    Hafi samdráttur í byggðarlagi í vinnslu á rækju, sem veidd er hér við land, verið 400 þorskígildistonn eða minni frá fiskveiðiárinu 2012/2013, 2013/2014, 2014/2015, 2015/2016, 2016/2017, 2017/2018, 2018/2019, 2019/2020 eða 2020/2021 að telja til fiskveiðiársins 2021/2022 koma aflaheimildir, sem nema 65 þorskígildistonnum í þess hlut. Hafi samdrátturinn í vinnslu verið meiri en 400 þorskígildistonn en minni en 1.500 þorskígildistonn í byggðarlagi koma 130 þorskígildistonn í þess hlut. Hafi samdráttur í vinnslu verið 1.500 þorskígildistonn eða meiri í byggðarlagi koma 195 þorskígildistonn í þess hlut.
  3. Hafi samdráttur í byggðarlagi í vinnslu á skel (hörpudisk og/eða kúfskel), sem veidd er hér við land, verið 400 þorskígildistonn eða minni frá fiskveiðiárinu, 2012/2013, 2013/2014, 2014/2015, 2015/2016, 2016/2017, 2017/2018, 2018/2019, 2019/2020 eða 2020/2021 að telja til fiskveiðiársins 2021/2022 koma aflaheimildir, sem nema 65 þorskígildistonnum í þess hlut. Hafi samdrátturinn í vinnslu verið meiri en 400 þorskígildistonn en minni en 1.500 þorskígildistonn í byggðarlagi koma 130 þorskígildistonn í þess hlut. Hafi samdráttur í vinnslu verið 1.500 þorskígildistonn eða meiri í byggðarlagi koma 195 þorskígildistonn í þess hlut.
  4. Nú sýna útreikningar að aflaheimildir koma einnig í hlut tiltekins byggðarlags samkvæmt A-lið þessarar greinar og skal þá einungis úthluta aflaheimildum til byggðarlags á grundvelli þess ákvæðis sem meira gefur, þ.e. A-liðar eða samtölu B- og C-liðar.
  5. Þegar reiknaður hefur verið út hlutur einstakra byggðarlaga samkvæmt A-lið hér að framan, skal hlutur byggðarlaga með færri íbúa en 400 og sem úthlutað var aflaheimildum á fiskveiðiárinu 2021/2022, og eiga rétt til úthlutunar fiskveiðiárið 2022/2023, leiðréttur þannig að ekkert þeirra lækki um meira en 15 þorskígildistonn, milli fiskveiðiáranna 2021/2022 og 2022/2023.

4. gr. Tilkynningar um byggðakvóta til sveitarstjórna.

Ráðuneytið tilkynnir sveitarstjórnum hversu miklar aflaheimildir koma í hlut hvers byggðarlags sem undir þær falla.

5. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi sem sett er, skv. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 919/2021, um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2021/2022.

Matvælaráðuneytinu, 8. september 2022.

Svandís Svavarsdóttir.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.