Prentað þann 22. des. 2024
1018/2017
Reglugerð um (8.) breytingu á reglugerð nr. 415/2014 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, p-liður, sem orðast svo:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/776 frá 4. maí 2017 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna í því skyni að laga hana að framförum í tækni og vísindum, sem vísað er til í tölul. 12zze, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 172/2017, þann 22. september 2017. Ákvörðunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 67 frá 19. október 2017, bls. 559-577.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2017/776 frá 4. maí 2017 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna í því skyni að laga hana að framförum í tækni og vísindum.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 8. nóvember 2017.
Björt Ólafsdóttir.
Sigríður Auður Arnardóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.