Fara beint í efnið

Prentað þann 22. des. 2024

Breytingareglugerð

987/2022

Reglugerð um breytingu á reglugerð um könnun hjónavígsluskilyrða nr. 55/2013.

1. gr.

Heiti reglugerðarinnar verður: Reglugerð um könnun hjónavígsluskilyrða og viðurkenningu á hjónavígslu sem farið hefur fram erlendis.

2. gr.

1. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum og löglærðir fulltrúar embættisins annast könnun á hjónavígsluskilyrðum frá og með 1. september 2022.

Könnunarmanni ber að gæta þess að hjónavígsluskilyrðum II. kafla hjúskaparlaga sé fullnægt.

Heimilt er að taka gjald fyrir útgáfu könnunarvottorðs.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar eru gerðar á 2. gr. reglugerðarinnar:

  1. 3. tl. 1. mgr. orðast svo: Vottorð frá Þjóðskrá Íslands um hjúskaparstöðu eða sambærilegt vottorð um hjúskaparstöðu frá erlendu yfirvaldi, þ.m.t. sendiráði erlends ríkis sem fer með fyrirsvar gagnvart Íslandi, ef unnt er. Vottorð má ekki vera eldra en tólf vikna.
  2. 2. mgr. orðast svo: Ef hjónaefni skýrir frá því að ekki sé unnt að afla vottorða frá erlendu yfirvaldi samkvæmt 3. tl. 1. mgr. skal það leggja fram staðfestingu þar að lútandi frá yfirvöldum þess ríkis, þ.m.t. sendiráði erlends ríkis sem fer með fyrirsvar gagnvart Íslandi, eða sýna fram á það á annan hátt að það sé ekki unnt, sbr. einnig 16. gr.
  3. Á eftir 2. mgr. koma tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi, og breytist röð annarra málsgreina samkvæmt því:

Hjónaefni er heimilt að leggja fram gögn hjá öðru sýslumannsembætti en því sem kannar hjónavígsluskilyrði. Hlutaðeigandi sýslumannsembætti skal þá framsenda gögnin til þess embættis sem annast könnun á hjónavígsluskilyrðum.

Könnunarmanni er heimilt að afla upplýsinga eða gagna samkvæmt 1. mgr. hjá Þjóðskrá Íslands, sýslumönnum og dómstólum með rafrænum hætti. Framangreindum aðilum ber að veita könnunarmanni rafrænan aðgang að umbeðnum upplýsingum eða gögnum búi þeir yfir þeim. Afli könnunarmaður nauðsynlegra upplýsinga eða gagna við könnun hjónavígsluskilyrða með rafrænum hætti hjá Þjóðskrá Íslands, sýslumönnum og dómstólum ber honum að upplýsa hjónaefni um fyrirhugaða upplýsingaöflun í samræmi við 2. mgr. 17. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

4. gr.

Orðið "fæðingarstaði" í 1. tl. 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

5. gr.

Eftirfarandi breytingar eru gerðar á 4. gr. reglugerðarinnar:

  1. 1. mgr. fellur brott.
  2. Í stað orðsins "ráðuneytisins" í 3. mgr. kemur: sýslumanns.

6. gr.

Í stað orðsins "ráðuneytinu" í 5. tl. 1. mgr. og 4. tl. 2. mgr. 10. gr. reglugerðarinnar kemur: sýslumanni.

7. gr.

Eftirfarandi breytingar eru gerðar á 11. gr. reglugerðarinnar:

  1. Á eftir orðunum "erlendum tungumálum" í 1. málslið 2. mgr. kemur: eða þýðingu frá sendiráði viðkomandi ríkis sem fer með fyrirsvar gagnvart Íslandi.
  2. Á eftir orðunum "sendiráði þess" í 4. mgr. kemur: sem fer með fyrirsvar.

8. gr.

Við 1. mgr. 12. gr. reglugerðarinnar bætist nýr málsliður er orðast svo: Heimilt er að afhenda skjalið með rafrænum hætti.

9. gr.

Eftirfarandi breytingar eru gerðar á 16. gr. reglugerðarinnar:

  1. 1. málsliður 3. mgr. orðast svo: Nú er hjónaefni erlendur ríkisborgari eða er með fasta búsetu erlendis og getur könnunarmaður þá krafist þess að það leggi fram gögn, könnunarvottorð eða sambærilegt skjal frá yfirvaldi í því landi sem það á ríkisfang í eða er búsett í, þ.m.t. sendiráði þess ríkis sem fer með fyrirsvar gagnvart Íslandi, til sönnunar því að hjónavígsluskilyrði séu uppfyllt samkvæmt lögum þess lands.
  2. Á eftir 2. málslið 3. mgr. kemur nýr málsliður svohljóðandi: Könnunarmaður metur hvort drengskaparvottorð hjónaefna og/eða erlends yfirvalds, þ.m.t. sendiráðs þess ríkis sem fer með fyrirsvar gagnvart Íslandi, geti verið fullnægjandi ef ekki er unnt að leggja fram vottorð heimalands um hjúskaparstöðu, né könnunarvottorð eða sambærileg gögn frá heimalandi.

10. gr.

Heiti IV. kafla reglugerðarinnar breytist og verður svohljóðandi: Gildistaka o.fl.

11. gr.

Á undan 17. gr. reglugerðarinnar í IV. kafla bætist við ný grein er verður 16. gr. a og orðast svo:

Viðurkenning á hjónavígslu sem farið hefur fram erlendis.

Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum skal frá og með 1. september 2022 úrskurða um skráningu á hjónavígslu sem fór fram erlendis skv. 25. gr. a hjúskaparlaga, nr. 31 14. apríl 1993, með síðari breytingum.

12. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 2. mgr. 13. gr. og 2. málslið 2. mgr. 133. gr. hjúskaparlaga, nr. 31 14. apríl 1993 með síðari breytingum, öðlast gildi 1. september 2022.

Dómsmálaráðuneytinu, 30. ágúst 2022.

Jón Gunnarsson.

Haukur Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.