Fara beint í efnið

Prentað þann 23. okt. 2026

Stofnreglugerð

979/2026

Reglugerð um brottfall reglugerða á sviði jafnréttismála.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerðir falla brott:

  1. Reglugerð um framkvæmd jafnlaunastaðfestingar og eftirlit Jafnréttisstofu, nr. 303/2021, sem sett var með stoð í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020.
  2. Reglugerð um vottun á jafnlaunakerfum fyrirtækja og stofnana á grundvelli staðalsins ÍST 85, nr. 1030/2017, sem var sett með stoð í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 10/2008, sem og skv. lögum um faggildingu o.fl., nr. 24/2006.
  3. Reglugerð um beitingu dagsekta sem Jafnréttisstofa ákveður, nr. 933/2019, sem sett var með stoð í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 10/2008.
  4. Reglugerð um starfsemi Jafnréttisstofu, nr. 47/2003, sem sett var með stoð í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 96/2000.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 33. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020, eins og þeim var breytt með lögum um skýrslugjöf um kynbundinn launamun, nr. 53/2026, og 15. gr. laga um stjórnsýslu jafnréttismála, nr. 151/2020.

Dómsmálaráðuneytinu, 10. september 2026.

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.

Páll Winkel.

B deild - Útgáfudagur: 11. september 2026

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.