Prentað þann 10. apríl 2025
977/2017
Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/880 um að setja reglur um notkun hámarksgildis leifa, sem ákvarðað hefur verið fyrir lyfjafræðilega virkt efni í tilteknum matvælum, fyrir önnur matvæli sem unnin eru úr sömu dýrategund og hámarksgildi leifa, sem ákvarðað hefur verið fyrir lyfjafræðilega virkt efni í einni eða fleiri dýrategundum, fyrir aðrar tegundir dýra í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 470/2009.
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í XIII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 167/2017, frá 22. september 2017, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/880 frá 23. maí 2017 um að setja reglur um notkun hámarksgildis leifa, sem ákvarðað hefur verið fyrir lyfjafræðilega virkt efni í tilteknum matvælum sem unnin eru úr sömu dýrategund og hámarksgildis leifa, sem ákvarðað hefur verið fyrir lyfjafræðilega virkt efni í einni eða fleiri dýrategundum, fyrir aðrar tegundir dýra í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 470/2009. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 67, frá 19. október 2017, bls. 520.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 96/1997 um slátrun og sláturafurðir, lögum nr. 66/1998 um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, lögum nr. 93/1995 um matvæli og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, öll með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 2. nóvember 2017.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Ólafur Friðriksson.
Iðunn Guðjónsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.