Prentað þann 7. apríl 2025
974/2021
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 984/2013 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar nr. 584/2010 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/65/EB að því er varðar snið og inntak staðlaðrar tilkynningar og staðfestingar á verðbréfasjóði, notkun rafrænna samskipta milli lögbærra yfirvalda vegna tilkynninga og verklagsreglur vegna sannprófunar á staðnum og rannsóknar sem og upplýsingaskipti milli lögbærra yfirvalda.
1. gr.
Í stað orðanna "2. mgr. 4. gr. og 1. mgr. 64. gr. laga um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði nr. 128/2011, með síðari breytingum" í 4. gr. reglugerðarinnar kemur: 26., 100., 127.-129. gr. og 1. mgr. 134. gr. laga nr. 116/2021 um verðbréfasjóði.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 26., 100., 127.-129. gr. og 1. mgr. 134. gr. laga nr. 116/2021 um verðbréfasjóði, öðlast gildi 1. september 2021.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 24. ágúst 2021.
F. h. r.
Guðrún Þorleifsdóttir.
Elísabet Júlíusdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.