Prentað þann 1. nóv. 2026
971/2026
Reglugerð um heimild til flutnings á allt að 25% af aflamarki í grálúðu, ufsa, gulllaxi, keilu, gullkarfa og skarkola frá fiskveiðiárinu 2025/2026 yfir á fiskveiðiárið 2026/2027.
1. gr.
Heimilt er að flytja allt að 25% af aflamarki í grálúðu, ufsa, gulllaxi, keilu, gullkarfa og skarkola frá fiskveiðiárinu 2025/2026 yfir á fiskveiðiárið 2026/2027.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett skv. heimild í 16. gr., sbr. 3. mgr. 11. gr. laga um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006. Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 8. september 2026.
Hanna Katrín Friðriksson.
Hallveig Ólafsdóttir.
B deild - Útgáfudagur: 10. september 2026
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.