Prentað þann 20. jan. 2025
Brottfallin reglugerð felld brott 7. nóv. 2019
971/2019
Reglugerð um brottfall reglugerða á sviði sjávarútvegs.
1. gr.
Eftirtaldar reglugerðir eru felldar brott:
- Reglugerð nr. 299/1975, um fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum.
- Reglugerð nr. 724/2006, um gerð og útbúnað smáfiskaskilju.
- Reglugerð nr. 747/2006, um bann við veiðum með fiskibotnvörpu austnorðaustur af Héraðsflóa nema notuð sé smáfiskaskilja eða 155 mm poki í botnvörpu.
- Reglugerð nr. 748/2006, um bann við veiðum með fiskibotnvörpu á Glettinganesgrunni nema notuð sé smáfiskaskilja eða 155 mm poki í botnvörpu.
- Reglugerð nr. 751/2006, um bann við veiðum með fiskibotnvörpu á Langanesgrunni nema notuð sé smáfiskaskilja eða 155 mm poki í botnvörpu.
- Reglugerð nr. 752/2006, um bann við veiðum með fiskibotnvörpu á Rifsbanka nema notuð sé smáfiskaskilja eða 155 mm poki í botnvörpu.
- Reglugerð nr. 736/2009, um úthlutun aflaheimilda í þorski vegna tilrauna við föngun fisks til áframeldis og framkvæmd þess, með síðari breytingum.
2. gr.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 21. október 2019.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Jóhann Guðmundsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.